Fara í efni

Sveitarstjórn

146. fundur 09. apríl 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir vararitari, Björgvin Helgason 1. varamaður og Leufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritar fundargerð.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að fá að taka lið 5 ársreikningur mál 1303041 fyrst á dagskrá. Samþykkt samhljóða. EJ aðalbókari sat fundinn undir lið 5 ársreikningur 2012. EJ vék af fundi kl 16.20.

 

1.   1303003F - Sveitarstjórn - 145


LJ gerði grein fyrir frágangi við gerð sparkvallar. Fundargerðin framlögð


2.   1303046 - 34. fundur fjölskyldunefndar.


HHJ lagði til við sveitarstjórn að samþykkja lið 1, hækkun á
viðmiðunarkvarða fjárhagsaðstoðar sem nemur 4.2%. SÁ gerði grein fyrir
að hann boðaði forföll á fundinn. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
Fundargerðin framlögð


3.   1304005 - 99. fundur fræðslu- og skólanefndar.

ÁH gerði grein fyrir fundargerðinni þakkaði sérstaklega fyrir árbók leik- og
grunnskóla. AH spurðist fyrir um lið 4, tónlistarnám og lið 10, íþróttaskóli.
ÁH svaraði fram komnum fyrirspurnum. SÁ gerði grein fyrir að hann
boðaði forföll á fundinn og spurðist fyrir varðandi lið 7 fermingarfræðsla og
lýsti yfir ánægju með nýútkomna árbók leik - og grunnskóla. ÁH svaraði
fram komnum fyrirspurnum. SSJ ræddi lið 3, starfsdagar.

Fundargerðin framlögð


4.   1304008 - 7. fundur landbúnaðarnefndar, 8. apríl 2013.


Fundargerð var send rafrænt.


SSJ lagði til að taka fundargerðina fyrir. Engar athugasemdir.
Fundargerðin framlögð.


5.   1303041 - Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2012.


Síðari umræða.

LJ gerði grein fyrir að engar fyrirspurnir hafi borist en að aðalbókari,
fjármálastjóri og sveitarstjóri hafi farið yfir endurskoðunarskýrslu ásamt
endurskoðanda og farið yfir ábendingar. LJ lagði til að samþykkja
ársreikninginn fyrir árið 2012.
Ársreikningur 2012 samþykktur samhljóða 7-0.


6.   1303045 - Afskrift á þing-og sveitasjóðsgjöldum.


Erindi frá Sýslumanninum í Borgarnesi.


LJ fór yfir erindið og lagði til að samþykkja afskriftirnar að upphæð kr. 422
auk vaxta. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


7.   1211054 - Fyrirmynd að samþykkt um stjórn sveitarfélags og augl. um ritun fundargerða.


Seinni umræða, tekin í 4. skipti.


SAF gerði gein fyrir breytingatillögum SAF, AH og ALE. SSJ fór yfir að
leiðrétta í 39. grein á að standa Byggðasafnið að Görðum. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0. SÁ benti á að bæta þarf við; yfirnefnd um
fjallskilamál í 39 greinina. SSJ lagði til að bæta við í 39 grein, liður: stjórnir
og samstarfsnefndir, nýr liður nr. 13; yfirnefnd fjallskilamála, einn fulltrúi
og einn fulltrúi til vara. Tillagan samþykkt samhljóðar 7-0.
Samþykktir fyrir Hvalfjarðarsveit eru samþykktar 7-0 með áorðnum
breytingum til birtingar í b - deild Stjórnartíðinda.


8.   1202064 - Yfirnefnd fjallskilamála.


Frestað á 145. fundi sveitarstjórnar.


LJ gerði grein fyrir vinna við gangaöflun og kynningu stendur enn yfir og
að Björg Gunnarsdóttir frá Borgarbyggð upplýsti að enn er verið að kynna
fjallskilasamþykktina í sveitarfélögunum. Lagði til að fresta afgreiðslu þar
til í byrjun maí. Tillaga um frestun samþykkt samhljóða 7-0


9.   1103050 - Skólaakstur grunnskóla.


Erindi frá Hópferðarbílum Reynis Jóhannssonar.


SSJ óskaði eftir að víkja af fundi undir þessum lið. ÁH tók við fundarstjórn.
SSJ vék af fundi. ÁH fór yfir erindið og velti upp að semja í eitt ár við
bréfritara. SAF ræddi erindið og velti upp að semja um skólaakstur í heild
og horfa á heildarupphæð skólaakstursins. LJ gerði grein fyrir að
hámarksupphæð samnings má vera 33.139.208 kr. án útboðs. SAF ræddi
erindið og óskaði eftir að fá upplýsingar á næsta fundi varðandi
heildarkostnað á skólaakstri á ári. ÁH lagði til að fresta erindinu til næsta
fundar. Samþykkt. SSJ tekur aftur þátt í fundinum.


10.   1304002 - Alþingiskosningar í apríl 2013.


A) kjörskrá B) kjörfundur C) kjörstaður


LJ gerði grein fyrir fram komnum tillögum.
A) Sveitarstjórn samþykkir kjörskrá eins og hún liggur fyrir núna. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0
A 1) Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að veita oddvita og sveitarstjóra
fullnaðarheimild til að gera leiðréttingar á kjörskrá fram á kjördag. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0
B) Sveitarstjórn samþykkir að kosið verið í einni kjördeild og að kjörfundur
standi frá kl. 9.00 - 21.00. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
C) Sveitarstjórn samþykkir að kjörstaður verði í stjórnsýsluhúsinu að
Innrimel 3.Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


11.   1103024 - Nýsköpunarsjóður Hvalfjarðarsveitar.


Ábending frá Kristjönu fjármálastjóra.


SSJ ræddi erindið og lagði til að samþykkja breytingu á
hámarksupphæðinni. AH ræddi erindið og benti á að í fjárhagsáætlun
ársins er upphæðin 1 miljón. SAF benti á að taka út textann um fjárhæð
kr. 2 miljónir og að hann verði tekinn út. Tillaga um að textinn um upphæð
verði tekin úr erindisbréfinu samþykkt samhljóða 7-0.


12.   1303043 - Aðalfundarboð Sorpurðunar Vesturlands hf.


Kosning fulltrúa á aðalfundi.


SSJ ræddi erindið. Lagði til að sveitarstjóri fari með umboð
Hvalfjarðarsveitar á aðalfundi. Tillagan samþykkt samhljóða. 6-0 AH situr
hjá við afgreiðsluna.


13.   1202051 - Deiliskipulag, athafna, hafnarsvæðis og iðnaðarsvæðis á Grundartanga - vestursvæði.


Erindi frá skipulags- og byggingarfulltrúa, um samþykki deiliskipulags
Vestursvæðis samk. 41. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010, til birtingar í b-deild.
Frestað þar til gögn hafa borist frá Umhverfisráðuneytinu.


14.   1304007 - Aðalfundir á vegum SSV, 19. apríl 2013.


Kosning fulltrúa.


SSJ ræddi erindið. Lagði til að sveitarstjóri fari með umboð
Hvalfjarðarsveitar á aðalfundum Menningarráðs Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands og Markaðsstofu Vesturlands. 6-0 AH situr hjá við
afgreiðsluna.

15.   1304003 - Aðalfundur og drög af ársreikningi 2012.


A) aðalfundur B) drög af ársreikningi. Frá Hitaveitufélagi Hvalfjarðar sf.

 
LJ gerði grein fyrir að fyrirhugaður aðalfundur Hitaveitufélags Hvalfjarðar
verður haldinn í lok apríl. ÁH lagði til að Sigurður Sverrir Jónsson fari með
umboð Hvalfjarðarsveitar á aðalfundi. Tillagan samþykkt með 4
atkvæðum SSJ ÁH SAF og HHJ. SÁ, AH og BH sitja hjá við afgreiðsluna.


16.   1211014 - Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.


Gögn verða send síðar.


SSJ lagði fram svohljóðandi tillögu;
”Á grundvelli þess að nú liggur fyrir hönnun og kostnaðargreining varðandi
mögulega ljósleiðaravæðingu í Hvalfjarðarsveit samþykkir sveitarstjórn að
fela sveitarstjóra að vinna áfram að tillögum og úrvinnslu gagna varðandi
stefnumótun um ljósleiðaravæðingu. Til grundvallar liggur stefnumörkun
starfshóps um ljósleiðaravæðingu .
Starfshópunum eru þökkuð vel unnin störf og sveitarstjórn samþykkir að
fela sveitarstjóra ásamt öðrum starfsmönnum stjórnsýslunnar að afla
tilskilinna gagna og upplýsinga“.
Greinargerð
Drög að framkvæmdaáætlun liggur nú fyrir þar sem verkefninu og
aðgerðum er lýst án dagsetninga. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 gerir ráð
fyrir allt að 130 miljónum til verkefnisins og á árinu 2014, 150 miljónum.
Undirbúningi verkefnisins miða vel áfram en ljóst er allnokkrir þættir eru
enn óljósir eins og fram kom á vinnufundi sveitarstjórnar sl. fimmtudag.
Sveitarstjóra er falið að vinna áfram í samræmi við niðurstöðu þess fundar
og leggja upplýsingar fyrir sveitarstjórn jafn óðum og þær berast. Tillögur
og ábendingar þær sem fram komu á fundinum verði vegvísir í
áframhaldandi vinnu.
LJ ræddi erindið. SÁ lagði til að fresta fram kominni tillögu þar sem hún
hafi ekki borist fyrr. SAF ræddi fram komna tillögu og lagði til að fresta
fram kominni tillögu. AH ræddi erindið og tók undir frestun. SSJ svaraði
fram komnum fyrirspurnum og lagði til að fresta fram kominni tillögu. SAF
ræddi fram komna tillögu. Tillaga um frestun samþykkt samhljóða 7-0


17.   1304004 - Rekstraryfirlit, janúar og febrúar 2013.


Frá fjármálastjóra.


Erindið framlagt


18.   1304006 - Ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði.


Frá Ungmennafélagi Íslands, dagsett 2. apríl 2013.


Erindið framlagt

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17.55 .

Efni síðunnar