Fara í efni

Sveitarstjórn

145. fundur 26. mars 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Stefán
Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir vararitari og Laufey Jóhannsdóttir
sveitarstjóri, ritar fundargerð.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og
var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að fá að taka lið 3 fyrst á dagskrá. Samþykkt samhljóða. Að auki sat KHÓ fjármálastjóri, EJ aðalbókari
fundinn og Jóhann Þórðarson endurskoðandi frá endurskoðunarskrifstofunni Áliti
fundinn undir lið 3 ársreikningur 2012.
KHÓ, EJ og Jóhann Þórðarson viku af fundi kl 16.50


1.   1303002F - Sveitarstjórn - 144

Fundargerðin framlögð.


2.   1303001F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 20


SAF gerði grein fyrir efnisatriðum fundargerðarinnar. Fundargerðin framlögð


2.1.  1208022 - Umhverfisverðlaun Hvalfjarðarsveitar 2012.


SAF gerði grein fyrir erindinu, tilnefningar hlutu; Bjarteyjarsandur,
Kjalardalur, Faxaflóahafnir, Ferstikluskálinn og Skógræktarfélag
Skilmannahrepps. Skógræktarfélag Skilmannahrepps hlaut
umhverfisverðlaun fyrir árið 2012. AH tók undir árnaðaróskir til
Skógræktarfélagsins. Erindið framlagt.


3.   1303041 - Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2012.


Fyrri umræða.


LJ gerði grein fyrir vinnu við ársreikninginn fyrir árið 2012, fór yfir
breytingar á vinnuferlum sem unnið hefur verið eftir á árinu 2012, fór yfir
lykiltölur og gat þess að rekstur Hvalfjarðarsveitar er traustur. Þakkaði
starfsfólkinu og starfsfólki Álits fyrir vel unnin störf við gerð ársreiknings.
Sveitarstjóri lagði til að ársreikningi verði vísað til síðari umræðu á næsta
fundi sveitarstjórnar.
Jóhann Þórðarson endurskoðandi fór yfir nokkrar lykiltölur og
endurskoðunarskýrslu Álits. ÁH þakkaði starfsfólki og starfsfólki
endurskoðunarskrifstofu vel unnin störf. SSJ tók undir þakkir fyrir vel
unnin störf. Tillaga um að vísa ársreikningi til síðari umræðu. Samþykkt
samhljóða 7 -0.


4.   1211054 - Fyrirmynd að samþykkt um stjórn sveitarfélags og augl.
um ritun fundargerða.


Seinni umræða, tekin í 3. skipti. Gögn áður send.


SSJ gerði grein fyrir að gögn bárust ekki í tæka tíð. Erindinu frestað.


5.   1303030 - Keltneskt fræðasetur- skipulagsskrá.

Erindi frá Akraneskaupstað.


LJ gerði grein fyrir fundi með bæjarstjóra Akraness varðandi erindið og
samninga við Akraneskaupstað. ÁH fór yfir erindið og tekur jákvætt í
erindið, ræddi drög að skipulagsskrá og lagði til að fresta afgreiðslu
skipulagsskrá. SAF ræddi erindið og tekur jákvætt í erindið og leggur til að
samþykkja erindið. AH tekur jákvætt í erindið. SSJ ræddi erindið og lagði
til að framlag Hvalfjarðarsveitar verði 10% af stofnfé sem verði 500
þúsund kr. Fjármögnun verði tekin af liðnum menningarmál í
fjárhagsáætlun. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Tillaga um að í
skipulagsskrá verði fjármunir 50.000 skv 2. grein. Tillagan samþykkt
samhljóða. 7-0


6.   1202064 - Yfirnefnd fjallskilamála.


Drög af nýrri fjallskilasamþykkt fyrir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit,
Skorradalshrepp og Borgarbyggð.


SSJ ræddi erindið, lagði til að fresta afgreiðslu og vísa drögunum til
kynningar í landbúnaðarnefnd. HV ræddi erindið og er samþykkur
fyrirliggjandi drögum. SAF ræddi drögin og benti á að í drögunum er gert
ráð fyrir að rekstrarleiðir fari inn í aðalskipulagsgerð, 9. grein. Ræddi
dagsetningar á réttardögum. AH ræddi drögin og hvort önnur sveitarfélög
hafi samþykkt drögin. SSJ ræddi drögin og frestun á afgreiðslu. SÁ ræddi
fram komin drög og lagði til að samþykkja drögin. HV ræddi kynningu á
drögunum og efnisatriði í 9. grein í drögunum. SSJ ræddi efnisatriði í 9.
grein í drögunum. SAF ræddi 9. greinina í drögunum og að
fjallskilanefndin skoði þessa grein nánar. SSJ ræddi erindið og lagði til
frestun. HV ræddi umræður á kynningarfundi sem haldinn var í febrúar.
SSJ lagði til frestun á afgreiðslu. Tillagan samþykkt með 5 atkvæðum. HV
og SÁ sitja hjá við afgreiðsluna. Tillaga um að vísa erindinu til
landbúnaðarnefndar til umfjöllunar. Samþykkt samhljóða 7-0. HV gerði
athugasemd við frestun málsins. SAF ræddi frestun.

7.   1204035 - Íbúaþing.


Minnisblað frá sveitarstjóra.


LJ gerði grein fyrir dagsetningum varðandi íbúaþing og að þrír aðilar hafa
sent inn upplýsingar. SAF ræddi erindið og lagði til að halda íbúaþingið í
lok sumars, lagði til halda íbúaþingið 31. ágúst. AH ræddi hugmynd um
íbúaþing og leggur til að halda sig við 13. apríl. HV ræddi dagsetningar og
undirbúning fyrir íbúaþing. Leggur til að halda þingið 13. apríl. SSJ ræddi
hugmyndir varðandi íbúaþing. SAF ræddi framkvæmd við íbúaþing og
dagsetningu á íbúaþingi. ÁH ræddi fram komnar hugmyndir um
dagsetningu. SSJ ræddi dagsetningar varðandi íbúaþing. ÁH ræddi
undirbúning íbúaþings. SAF ræddi dagsetningar varðandi íbúaþing. SÁ
ræddi fram komnar hugmyndir varðandi dagsetningar. Tillaga um að
halda íbúaþing 31. ágúst samþykkt með 4 atkvæðum, SSJ, ÁH HHJ SAF.
HV AH SÁ greiða atkvæði gegn tillögunni. HV gerði grein fyrir atkvæði
sínu. SAF gerði grein fyrir atkvæði sínu.


8.   1303021 - Glammastaðaland, athugasemdir ( Kærumál )


Frá Félagi Landeigenda í Glammastaðalandi, dagsett 7. mars 2013.


LJ gerði grein fyrir erindinu. Erindið framlagt.

9.   1303008 - Hver er stefna sveitarstjórnar um lagningu göngu- og
hjólastíga fyrir íbúa Hvalfjarðarsveitar ?


Aftur á dagskrá. Minnisblað frá sveitarstjóra.


LJ gerði grein fyrir erindinu. Erindið framlagt


10.   1210085 - Verksamningur við Hvalfjarðarsveit um Fræðslustjóra að
láni.


Minnisblað frá sveitarstjóra og endurmenntunaráætlun.


LJ gerði grein fyrir erindinu. Erindið framlagt.


11.   1211064 - Minnisblað vegna ljósleiðaravæðingar fyrir Hvalfjarðarsveit


Frá sveitarstjóra og áætlun frá Mílu.


LJ gerði grein fyrir erindinu. Lagði til að halda sérstakan fund um
ljósleiðaraerindið. Erindið framlagt.


12.   1303043 - Aðalfundarboð Sorpurðunar Vesturlands hf.


Frá Sorpurðun Vesturlands. Ársreikningur 2012 og grænt bókhald 2012,
liggja frammi


LJ gerði grein fyrir að aðalfundardagur verður 19. apríl. Erindið framlagt.


13.   1303040 - Stafrænar landupplýsingar Landmælinga Íslands verða
gjaldfrjálsar.


Frá Landmælingum Íslands, dagsett 19. mars 2013. Þegar sent form.
USN nefndar og skipulags- og byggingarfulltrúa.


Erindið framlagt


14.   1303023 - Til umsagnar frumvarp til laga um lífeyrisréttindi
almannatrygginga og félagslegan stuðning (heildarlög), 636. mál.


Frá Alþingi, dagsett 13. mars 2013. Þegar sent form. fjölskyldunefndar og
félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


Erindið framlagt


15.   1303024 - Til umsagnar frumvarp til laga um slysatryggingar
almannatrygginga (heildarlög), 635. mál.

Frá Alþingi, dagsett 13. mars 2013. Þegar sent form. fjölskyldunefndar og
félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


Erindið framlagt


16.   1303025 - 107. fundur Faxaflóahafna.


Fundargerðin framlögð


17.   1303035 - 13. og 14. fundargerð nefndar um nýja fjallskilasamþykkt.


Fundargerðirnar framlagðar


18.   1303044 - 22. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.


Fundargerðin framlögð

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18.47 .

Efni síðunnar