Fara í efni

Sveitarstjórn

131. fundur 10. júlí 2012 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir vararitari og Anna Leif Elídóttir 1. varamaður.


Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að taka mál 1207020. Samþykkt samhljóða.Skipulags- og byggingarfulltrúi sat fundinn undir 2.lið USN nefnd. Að auki sat sveitarstjóri(LJ) fundinn ritaði fundargerð.

 

1. 1206002F - Sveitarstjórn - 130


LJ gerði grein fyrir að listi yfir starfsfólk sveitarfélagsins verður lagður fram á næsta fundi. HV spurðist fyrir varðandi lið 12. LJ, SSJ og SAF svöruðu fram komnum fyrirspurnum. Fundargerðin framlögð


2. 1206004F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 13


HHK fór yfir efnisatrið fundargerðarinnar og benti á að erindi hefur komið í dag varðandi lið 2. frá Landsneti að byggingar 1. áfanga eru í meira en 100 metra fjarlægð frá Grundatangavegi. SÁ ræddi dagsetningar á fundum USN nefndar. SAF svaraði fram komnum athugasemdum. Fundargerðin framlögð.

2.1. 1111052 - Grundartangi stóriðnaðarsvæði tengivirki.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.2. 1207014 - Umsókn um undirbúningsframkvændir.


SAF ræddi tillöguna. AH ræddi fram komnar upplýsingar. SAF ræddi fram komnar upplýsingar frá Landsneti. Óskaði eftir fundarhléi. Að afloknu fundarhléi. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

2.3. 1206026 - Deiliskipulag vegna 10 kw smávirkjunar í landi Dragháls Hvalfjarðarsveit


HV spurðist fyrir varðandi áhrif af smávirkjun á vatnasvæði Laxár. SAF gerði grein fyrir skipulagsferlinu og að hér er um að ræða að fara með málið í lýsingu við deiliskipulagstillögu. HV ræddi að ekki

hafi farið fram kynning hjá Veiðifélagi Laxár. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


3. 1207016 - 9. fundur nýsköpunarsjóðs Hvalfjarðarsveitar.


Fundargerðin framlögð


4. 1206049 - Beiðni um bundið slitlag á plan fyrir framan Laxárbakka.


Erindi frá Ingvari Þ. Gunnarssyni.


SSJ lagði til að erindinu verði hafnað. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


5. 1207017 - Tillaga að samningi milli sveitarfélaganna vegna búsetuverkefnis.


Erindi frá Akraneskaupstað. Samningur á milli Akraneskaupstaðs, Hvalfjarðarsveitar og Reykhólahrepps.

Samningurinn samþykkur samhljóða 7-0.


6. 1207005 - Fasteignamat 2013.


Erindi frá Þjóðskrá Íslands, dagsett 2. júlí 2012.


LJ benti á að fasteignamat hefur hækkað um 6,8 % og landmat um 6,6% í Hvalfjarðarsveit. Ábendingum skal komið á framfæri við Þjóðskrá fyrir 1. ágúst nk. Erindið framlag.


7. 1207013 - Beiðni um styrk til að sameina allar uppl. og fræðslu um einelti meðal barna í 4x50 mín. sjónvarpsseríu.


Erindi frá Ljósboga kvikmyndagerð, dagsett 26. júní 2012.


SAF lagði til að vísa erindinu til umfjöllunar í fræðslu- og skólanefnd. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

8. 1207019 - Beiðni um styrk vegna inntökuprófs í læknisfræði.


Erindi frá Ásdísi Björgu Björgvinsdóttur, dagsett 4. júlí 2012.


SSJ lagði til að erindinu verði hafnað. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


9. 1207020 - Alifuglabúið Fögrubrekku - útgáfa starfsleyfi.

Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, áður sent í tölvupósti.


Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við leyfisveitingu til Alifuglabúsins Fögrubrekku. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

10. 1207008 - Kynningarefni frá Markaðsstofu Vesturlands.


Kynningarefnið liggur frammi.

 

Erindið framlagt


11. 1207011 - Aðalfundarboð Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.


Aðalfundurinn verður haldinn í Stykkishólmi 31/8 og 1/9 2012.


Erindið framlagt


12. 1207004 - Ungt fólk og lýðræði 2012.


Ungmennaráðstefna sem haldin var 29. - 31. apríl 2012. Skýrslan var send rafrænt.


Erindið framlagt


13. 1206051 - Greiddur arður.


Frá Faxaflóahöfnum, dagsett 21. júní 2012.

Erindið framlagt


14. 1206022 - Aðalfundur Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar 2012.


Fundargerð. Ársreikningur 2011, liggur frammi.


Fundargerðin framlögð


15. 1206033 - Fjárlaganefnd hyggst breyta áherslum sínum við fjárlagagerðina og óskar eftir viðbrögðum.


Áður á dagskrá sveitarstjórnar 26. júní 2012.


Sveitarstjórn tekur undir með stjórn SSV um að bjóða fjárlaganefnd til funda á Vesturlandi. Sveitarstjórn samþykkir að bjóða fjárlaganefnd til fundar í Hvalfjarðarsveit í ágústmánuði. Sveitarstjóra falið að koma erindinu til nefndarinnar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


16. 1207009 - 15. fundur stjórna Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.


Fundargerðin framlögð


17. 1207010 - 89. fundur stjórnar SSV, 25. júní 2012.


Fundargerðin framlögð


18. 1207003 - 798. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Fundargerðin framlögð


19. 1206050 - 99. fundur Faxaflóahafna.


Fundargerðin framlögð

 

 

Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi tillögu.
Með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 samþykkir sveitarstjórn að fella niður reglulegan fund í sumarleyfi sveitarstjórnar 24. júlí. Fyrsti fundur eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá 10. ágúst 2012. LJ ræddi að fella fund niður. SÁ ræddi fundi sveitarstjórnar. SAF ræddi erindið. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:30 .

Efni síðunnar