Fara í efni

Sveitarstjórn

128. fundur 22. maí 2012 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Birna María Antonsdóttir vararitari, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður og Stefán Ármannsson aðalmaður.


Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að taka lið 16 fyrst á dagskrá. Samþykkt samhljóða. Og fá að taka á dagskrá lið frá Birnu Maríu ósk um lausn frá störfum, samþykkt samhljóða.
Launa- og fjármálafulltrúi (KHÓ) sat fundinn undir lið 16 og skipulags- og byggingarfulltrúi undir lið 2 USN nefnd. Að auki sat sveitarstjóri(LJ) fundinn ritaði fundargerð.

1. 1204002F - Sveitarstjórn - 127


Fundargerðin framlögð.


2. 1204001F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 11


HHK gerði grein fyrir efnisatriðum fundargerðarinnar. SAF og AH ræddu efnisatriði fundargerðarinnar. Fundargerðin framlögð.


2.1. 1204046 - Deiliskipulagstillaga,iðnaðarsvæðis l 1,Klafastaðir, Hvalfjarðarsveit.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


3. 1205013 - 28. fundur fjölskyldunefndar.


SAF fór yfir fundargerðina. Lagði til að samþykkja lið 5. SÁ ræddi fundargerðina og lagði til frestun á lið 4.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. LJ ræddi fundargerðina og lagði til frestun á lið 5. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum og lagði til að samþykkja lið 5. LJ ræddi útfærslu á fjárhagsáætlun varðandi lið 5. Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að koma með endanlega tillögu varðandi fjármögnun á næsta fund sveitarstjórnar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Fundargerðin framlögð.


4. 1205017 - 7. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

Fundargerðin framlögð.


5. 1205021 - 1. fundur starfshóps um ljósleiðaravæðingu.


Fundargerðin framlögð.


6. 1205028 - 84. fundur fræðslu- og skólanefndar.


Fundargerðin verður send rafrænt.

BMA fór yfir fundargerðina. Þakkaði skólastjóra vel unnin störf í þágu Hvalfjarðarsveitar og óskaði henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. Fór yfir skólastarfið í vetur. Ræddi brotthvarf nefndarmanna úr fræðslu- og skólanefnd og þakkaði þeim samstarf og samvinnu en nefndin hefur starfað af heilindum í þágu menntunar barna og ungmenna í Hvalfjarðarsveit. Lagði fram svohljóðandi bókun;
Þakka Ingibjörgu Hannesdóttur kærlega fyrir vel unnin störf og óska henni velfarnaðar í nýju starfi. Sameining skólanna hefur gengið vel og flest af því sem við lögðum upp með hefur náð fram að ganga. Innra starf skólans er í blóma og margar spennandi nýjungar eru í skólastarfinu í dag eins og þematengd kennsla, morgunsöngur, leikskólalæsi og byrjendalæsi auk margra annarra nýjunga. Af því sem gott er í skólastarfinu stendur upp úr það frábæra samstarf sem komið er á milli sviðanna bæði hjá starfsmönnum og börnum. Sviðsstjórar beggja sviða hafa lýst sig reiðubúna til að stíga fram og stýra sínu sviði hvor og ég treysti þeim fullkomlega til að gera það með öruggri hendi. Þær eru báðar mjög faglegar og njóta mikils traust innan skólans. Af gefnu tilefni vil ég benda á hvert hlutverk fræðslu- og skólanefndar er en í erindisbréfi nefndarinnar segir: ”Meginhlutverk fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar er að móta stefnu í skólamálum sveitarfélagsins, og sjá um að öll börn í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu”


Það er leiðinlegt að horfa á eftir öllum þessum færu nefndarmönnum. Nefndin hefur unnið vel saman og allir unnið af heilindum og ósérhlífni. Það hefur einkennt störf nefndarinnar hve laus hún er við alla flokkadrætti enda á slíkt ekki heima í nefnd sem þessari þar sem allir eru að vinna af áhuga og af metnaði fyrir góðum málefnum. En ég skil þeirra afstöðu vel þar sem ég hef hugsað mér að feta í þeirra fótspor og segja af mér í lok þessa fundar.

ÁH ræddi skólastarfið, þakkaði skólastjóra og þeim aðilum sem nú hverfa úr fræðslu- og skólanefnd vel unnin störf. SAF ræddi skólastarf vetur og þakkaði vel unnin störf í fræðslu- og skólanefnd og þakkaði skólastjóra. LJ ræddi fundargerðina og þakkaði Ingibjörgu og fulltrúum í fræðslu- og skólanefnd óskaði þeim velfarnaðar í nýjum vettvangi. HV tók undir þakkir til IH og fræðslu- og skólanefndar. BMA þakkaði Valgerði Oddsdóttur sérstaklega samstarfið. SSJ þakkaði IH og nefndarmönnum vel unnin störf.Fundargerðin framlögð.


7. 1205018 - Uppsögn úr starfi.


Erindi frá Ingibjörgu Hannesdóttur, dagsett 14. maí, 2012.

LJ ræddi hugmyndir varðandi að kalla saman fund í fræðslu- og skólanefnd.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá starfslokum IH í samræmi við umræður á undirbúningsfundi sveitarstjórnar fyrr í dag. Jafnframt að vinna að auglýsingu með fræðslu- og skólanefnd varðandi ráðningu nýs skólastjóra. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. 


8. 1205022 - Sala lausafjármuna úr eldra skólahúsnæði


Erindi frá sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar.


Sveitarstjórn samþykkir að veita sveitarstjóra heimild til sölu lausafjármuna. Samþykkt samhljóða 7-0.


9. 1204013 - Skipan varðandi ljósleiðaramál.


Kosning varamanna E- og L- lista.


Tillaga um varamann frá E lista, Hallfreður Vilhjálmsson. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
Tillaga um varamann frá L lista, Sigurður Ingólfsson. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

10. 1204035 - Tillaga frá E-lista, íbúaþing.


Afgreiðslu frestað á sveitarstjórnarfundi þann 24. apríl sl.. Samantekt sveitarstjóra og minnisblað frá VSÓ Ráðgjöf.


Afgreiðslu frestað. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

11. 1205004 - Skólastefna Hvalfjarðarsveitar.

Frestað á 127. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

BMA lagði til að samþykkja skólastefnuna. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

12. 1205011 - Beiðni um að taka rekstur slökkviliðsins til sérstakar skoðunar.

Erindi frá Þránni Ólafssyni slökkviliðsstjóra, dagsett 4. maí 2012.


LJ ræddi erindið og gerði grein fyrir viðræðum bæjarstjóra Akraness og sín við slökkviliðsstjóra. Ræddi erindi frá bæjarráði Akraness sem tilnefnir bæjarstjóra í starfshópinn. SAF lagði til að oddviti og sveitarstjóri ræði erindið við Akraneskaupstað. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


13. 1205015 - Tilboð á sparkvelli við Heiðarskóla.

Fundargerð.


SÁ vék af fundi undir þessum lið. LJ gerði grein fyrir yfirferð á tilboðum og að ekki hafi komið fram neinar skekkjur í tilboðunum. Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjóri gangi til samninga við lægstbjóðanda. Tillagan samþykkt samhljóða 6-0. SÁ tekur þátt í fundinum aftur.

14. 1205030 - Útleigureglur fyrir samkomusal Heiðarskóla grunnskólasvið.

Áður frestað.


SAF ræddi erindið og lagði til frestun þar til í upphafi næsta skólaárs. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


15. 1205003 - 83. fundur fræðslu- og skólanefndar.

Liður 9, frestað frá síðasta fundi sveitarstjórnar.


SSJ lagði til að fresta afgreiðslu til næsta fundar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


16. 1205035 - Ósk um lausn frá störfum úr sveitarstjórn sem og öðrum störfum á vegum sveitarfélagsins. Bréf frá Birnu Maríu Antonsdóttur


Undirrituð biður um lausn frá störfum úr sveitarstjórn út kjörtímabilið, samkvæmt 30. gr. sveitarstjórnarlaga 138/2011. Þar sem ég hverf til annarra starfa þá tel ég mig ekki lengur geta gengt skyldum mínum í sveitarstjórn. Jafnframt segi ég af formennsku í fræðslu- og skólanefnd Hvalfjarðarsveitar og af setu í fulltrúaráði Fjölbrautarskóla Vesturlands. Óskað er eftir að lausn þessi taki gildi við lok þessar fundar. Setan í sveitarstjórn hefur verið fróðleg og á köflum erfið. Hún hefur sýnt mér hliðar á samfélaginu sem ég hafði ekki áður kynnst. Margt hefur áunnist á þessum tveimur árum sem búin eru af kjörtímabilinu. Af stórum verkum er efst í huga sameining leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Sameiningin hefur tekist mjög vel og innra starf skólans er í blóma þó skólinn sé enn í mótun. Af öðrum góðum verkum má nefna málsmeðferðarreglur sem auka íbúalýðræði, aðkoma sveitarfélagsins að stofnun Hvalfjarðarklasans, upplýsingaskiltin, stofnun Nýsköpunarsjóðs, aukið félagsstarf barna og unglinga, KSÍ sparkvöllur, aðstoð við neysluvatn, unnið að lausnum varðandi hitaveituvæðingu, lækkun fæðisgjalda í skólanum og lækkun útsvars. Þetta er engan veginn tæmandi listi en ég er stolt af því að eiga hlutdeild í framkvæmd þessara atriði. Enn er nóg eftir af kjörtímabilinu og ég hvet sveitarstjórn áfram til góðra verka.


Félögum mínum í meirihlutanum þakka ég fyrir gott og traust samstarf. Fræðslu- og skólanefnd þakka ég fyrir frábæra samvinnu þar sem aldrei bar á flokkadráttum og allir nefndarmenn unnu af heilindum og ósérhlífni við að því að efla menntun og velferð barna í Hvalfjarðarsveit. Einnig þakka ég Laufeyju sveitarstjóra fyrir mikla og góða hjálp. Sem og starfsmönnum skrifstofu sveitarfélagsins. Um leið og ég óska eftirmanni mínum í sveitarstjórn velfarnaðar óska ég nýrri fræðslu- og skólanefnd velfarnaðar í starfi og vona að þeim beri gæfa til að halda áfram á þeirri braut sem hefur verið lagt upp með til að efla skólann okkar. Einnig vil ég óska sveitarstjórn sem og sveitarfélaginu öllu velfarnaðar. Takk fyrir mig.


Til máls tóku; ÁH AH HV SÁ SAF SSJ LJ tóku til máls og þökkuðu BMA vel unnin störf. BMA þakkaði hlý orð í sinn garð. Sveitarstjórn samþykkir að veita BMA lausn frá störfum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


17. 1205027 - Rekstraryfirlit fyrsta ársfjórðung 2012.


KHÓ fór yfir rekstraryfirlitið. Erindið framlagt


18. 1205023 - Sala á lausri skólastofu við Heiðarskóla.


LJ gerði grein fyrir sölunni en sveitarstjórn hafið samþykkt tilboðið á milli funda. Erindið framlagt


19. 1205025 - Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2012. Rekstraryfirlit jan.- apríl 2012.


Frá Faxaflóahöfnum sf., dagsett 11. maí, 2012. Ásamt Ársskýrslu 2011, hún liggur frammi.

Erindið framlagt.


20. 1205026 - Ársreikningur Byggðasafnsins 2011.


Frá Akranesstofu, dagsett 8. maí, 2012. Ársreikningurinn liggur frammi.


Erindið framlagt


21. 1204045 - Aðalfundur Hitaveitufélags Hvalfjarðar 2012.


Fundargerðin framlögð


22. 1205020 - 104. - 106. fundir Heilbrigðisnefndar Vesturlands.

Fundargerðirnar framlagðar.

23. 1205024 - 98. fundur Faxaflóahafna sf.

Fundargerðin framlögð


24. 1205029 - 88. fundur stjórnar SSV, 11. maí 2012.


Fundargerðin framlögð

 

25. 1202019 - 6. aðalfundur Menningarráðs Vesturlands.


Ásamt ársskýrslu Menningarráðs Vesturlands 2011. Ársskýrslan liggur frammi.


Fundargerðin framlögð.


26. 1205031 - 64. - 66. fundur Menningarráðs Vesturlands.


Fundargerðirnar framlagðar.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:30 .


Efni síðunnar