Fara í efni

Sveitarstjórn

127. fundur 08. maí 2012 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður, Magnús Ingi Hannesson 1. varamaður, Halldóra Halla Jónsdóttir 2. varamaður og Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður.


Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Að auki sat sveitarstjóri(LJ) fundinn ritaði fundargerð.


1. 1204002F - Sveitarstjórn - 126


HHJ tók til máls undir lið 6 mál 1204033 í 27. fundargerð fjölskyldunefndar og lagði fram minnisblað varðandi ferðaþjónustu og búsetuúrræði fyrir fatlaða. HV ræddi lið 8. AH spurðist fyrir varðandi úrvinnslu á fundargerð ungmennaráðs og sveitarstjórnar. Fundargerðin framlögð.


2. 1205001 - 6. fundur menningar og atvinnuþróunarnefndar.


Fundargerðin framlögð.


3. 1205003 - 83. fundur fræðslu- og skólanefndar.


AH spurðist fyrir varðandi lið 5 undanþágubeiðni, lið 6 viðhorfskönnun og lið 9 tillaga á nafn á sameinaðan skóla. Spurðist fyrir um hvort samráðshópur vegna sameiningar hafi verið boðaður til fundar. HV ræddi bréf sem sveitarstjórn og fræðslu- og skólanefnd hefur fengið sent frá starfsmanni grunnskóla. MH ræddi málefni grunnskóla og tillögu um nafn. SSJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SÁ ræddi sama mál. ÁH ræddi sama mál. MH ræddi málefni skólans. AH lýsti yfir áhyggjum varðandi skólastarf í grunnskóla . SSJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. HV ræddi fram komnar fyrirspurnir. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. HV ræddi fyrirspurnir. AH ræddi fram komin svör.
SSJ lagði til frestun lið 9; Yfirnafn skólans verði; leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar. Grunnskólasvið Heiðarskóli og leikskólasvið Skýjaborg. Tillagan samþykkt með 3 atkvæðum SSJ HHJ og ÁH. SÁ og MH greiða atkvæði gegn tillögunni og HV og AH sitja hjá við afgreiðsluna. Fundargerðin framlögð.


4. 1204054 - Dómur hæstaréttar, skipulag. Fasteign. Skaðabætur.

Mál Hvalfjarðarsveitar varðandi deiliskipulag við Mela frá árinu 1999, ( Leirár- og Melahreppur ) gegn Sólveigu K. Jónsdóttur, Salvöru Jónsdóttur, Áslaugu Jónsdóttur og Védísi Jónsdóttur. Dómur Hæstaréttar. Bótakrafa með áföllnum kostnaði kr. 15.004.311.

 

LJ gerði grein fyrir niðurstöðunni og fór yfir upphaf málsins. Lagði fram minnisblað. LJ lagði fram eftirfarandi bókun; Sveitarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 15.004.311 kr auk kostnaðar frá 26. apríl 2012 fram að greiðsludegi samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 63. gr sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á handbæru fé um sömu upphæð. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

5. 1204053 - 11. fundargerð um sameiningu þriggja fjallskilasamþykkta.

 

Ásamt samþykkt fyrir sameiginlega yfirnefnd fjallskilamála.


SSJ lagði til að samþykkja lið 2. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
og liður 4. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Fundargerðin framlögð.


6. 1204035 - Tillaga frá E-lista, íbúaþing.

LJ gerði grein fyrir að gagnaöflun sé ekki lokið erindið framlagt.


7. 1205004 - Skólastefna Hvalfjarðarsveitar.

A) Til samþykktar. B) Beiðni um styrk vegna prentunnar á skólastefnunni.

 

A) skólastefna.
B) prentun. LJ gerði grein fyrir að ekki væri áætlað fyrir prentun á fjárhagsáætlun ársins 2012. Lagði til að taka af prentkostnaði skrifstofu lið 40 - 4010. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
AH lagði til frestun á lið A) Tillaga um frestun samþykkt með atkvæðum ÁH og SSJ.
HV SÁ AH MH HHJ sitja hjá við afgreiðsluna.

8. 1205005 - Beiðni um afnot á Fannahlíð án endurgjalds.

 

Erindi frá Kvenfélaginu Lilju, vegna kaffiboðs fyrir eldri borgara þann 17. maí 2012.


SÁ lagði til að samþykkja erindið. SSJ ræddi erindið. Samþykkt 7-0.


9. 1205002 - Ársreikningur Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis 2011.

 

Frá Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili, dagsett 27. apríl 2012. Ársreikningurinn liggur frammi.


Ársreikningurinn framlagður.

10. 1202017 - Gerð sparkvallar.

 

Minnisblað sveitarstjóra.


LJ gerði grein fyrir að fram færi lokað útboð. Opnun útboðs fer fram 10. maí nk. MH ræddi frágang á uppgröfnu efni og spurðist fyrir um kostnað við gerð útboðsgagna. SSJ svaraði fram kominni fyrirspurn. Lagt fram.


11. 1204049 - Aðalfundur Ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar, og skýrsla stjórnar.

 

Skýrsla stjórnar liggur frammi.


Skýrslan framlögð.

12. 1204047 - 9. aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturland.

 

A) Fundargerð B) Skýrsla formanns C) Ársskýrsla 2011, liggur frammi. D) Ársreikningur 2011, liggur frammi.


LJ gerði grein fyrir að því miður hefði skrifstofunni láðst að leggja fundarboðið fyrir sveitarstjórn og er beðist velvirðingar á þeim mistökum. B) Skýrsla formanns, C) ársskýrsla 2011 og D) ársreikningur 2011 framlögð.


13. 1205008 - Skorað á ríki og sveitarfélög að auka framlög til minka- og refaveiða.

 

Erindi frá Búnaðarsamtökum Vesturlands, dagsett 24. apríl 2012.


Erindið framlagt.

14. 1204051 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 727. mál.

 

Erindi frá Alþingi, dagsett 25. apríl 2012. Þegar sent formanni USN nefndar og skipulags- og byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar.


SSJ lagði til að vísa erindinu til USN nefndar. Samþykkt samhljóða 7-0.

15. 1204052 - 13. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og og dvalarheimilis.

Fundargerðin framlögð.


16. 1205006 - 796. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Fundargerðin framlögð.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:56.

Efni síðunnar