Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2009-2014

124. fundur 10. desember 2015 kl. 20:00 - 22:00

Daníel Ottesen formaður, Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari, Björn Páll Fálki Valsson 

aðalmaður, Guðný Kristín Guðnadóttir 1. varamaður, Guðrún Dadda Ásmundsdóttir 

áheyrnafulltrúi, Helena Bergström áheyrnafulltrúi, Elín Ósk Gunnarsdóttir 

áheyrnafulltrúi, Jón Rúnar Hilmarsson embættismaður og Arndís Halla Jóhannesdóttir 

embættismaður.

 

Arndís Halla Jóhannesdóttir  félagsmálastjóri, ritaði fundargerð

1.   1508009 - Forvarnarstefna

 

Forvarnarstefna Hvalfjarðarsveitar lögð fram til samþykktar. Nefndin 

samþykkir Forvarnarstefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni áfram til 

afgreiðslu hjá sveitarstjórn.

 

2.   1503028 - Stefnumótun í íþrótta- og æskulýðsmálum.

 

Stefnumótun í íþrótta- og æskulýðsmálum lögð fram. Nefndin samþykkir 

stefnuna og leggur hana fram til sveitarstjórnar.

 

3.   1508008 - Fjárhagsáætlun 2016 - nefndir.

 

Farið yfir þá liði fjárhagsáætlunar sem snúa að nefndinni. Formanni 

nefndarinnar er falið að koma á framfæri athugasemdum nefndarinnar. 

 

BPFV kemur með athugasemdir við fjárhagsáætlun 2016. Fjármagn til 

viðhalds á húsnæði leikskóla er of lítið miðað við þær upplýsingar sem 

liggja fyrir. Sveitarstjórn leggur til að settur verði á aðgangseyrir fyrir 

aðgang að Heiðarborg og er það miður þegar mikill árangur hefur náðst í 

aukinni aðsókn í Heiðarborg. Ekki er sett nægt fjármagn í viðhald á búnaði 

t.d. tölvubúnaði, gufuofn í eldhús o.fl. Fjármagn til viðhalds sundlaugarinna 

á Hlöðum 31.milljón er glórulaust þegar opnunartími er aðeins u.þ.b. þrjá 

mánuði á ári og rekstrarkostnaður rúmar 7.milljónir. BPFV þykir miður að 

Fræðslu- og skólanefnd hafi ekki átt betri aðkomu við gerð 

fjárhagsáætlunar, fjárhagsáætlun 2016 var dreift á fundi nefndarinnar þann 

10.12 2015.

 

4.   1205004 - Skólastefna Hvalfjarðarsveitar. 

 

Búið er að skipa í stýrihóp til að endurskoða skólastefnu Hvalfjarðarsveitar. 

Fulltrúi frá foreldrafélagi er Guðrún Dadda Ásmundardóttir, úr skóla 

Sigríður Lára Guðmundsdóttir og Jón Rúnar Hilmarsson, úr leikskóla 

Guðný Birna Ólafsdóttir og úr Fræðslu- og skólanefnd Eyrún Reynisdóttir 

og Guðný Kristín Guðnadóttir.

 

5.   1512008 - Spjaldtölvuráðstefna og framtíðarsýn sveitarfélagsins

 

Skólastjóri upplýsti nefndarmenn um væntanlega ráðstefnu um spjaldtölvur 

í skólastarfi sem haldinn verður 4.janúar 2016 sem leik- og grunnskóli 

Hvalfjarðarsveitar stendur fyrir. Nefndarmönnum stendur til boða að sækja 

fund fyrirlesara sem og að sitja ráðstefnuna. Nefndin fagnar því að 

ráðstefnan skuli vera haldin og á starfsfólk skólans hrós skilið. Nefndin felur 

skólastjóra að vinna þarfagreiningu og stefnumótun varðandi tækniþróun 

næstu ára í leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar, stefnt skal að því að 

leggja drög að þessu fyrir næsta fund nefndarinnar.

 

6.   1512014 - Fundargerð foreldrafélags

 

Fundargerð foreldrafélagsins lögð fram til kynningar.

 

7.   1512013 - Starfsmannamál Skýjaborg

 

Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að auka vægi fagfólks innan 

leikskólans. Skólastjóra falið að taka saman ýmis gögn varðandi 

starfsmannahaldið.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 22:25 

Efni síðunnar