Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2009-2014

112. fundur 21. október 2014 kl. 17:00 - 19:00

Hjördís Stefánsdóttir formaður, Ólafur Ingi Jóhannesson varaformaður, Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari, Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður, Guðmundur Ólafsson aðalmaður, Ragna Kristmundsdóttir og Helena Bergström.


Hjördís Stefánsdóttir  formaður fræðslu- og skólanefndar, ritaði fundargerð.


1.   1410035 - Tómstundaiðkun barna í Hvalfjarðarsveit - samstarf UMSB og ÍA og stefnumótunarvinna æskulýðs-tómstunda og frístundamála.


Stefnumótunarmálin rædd og ákveðið að halda umræðunni áfram og
vinna næstu skref á vinnufundi. Nefndin telur rétt að skoða samstarf við
Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) í fyrirhugaðri
stefnumótunarvinnu. Nefndin fagnar því tilraunaverkefni sem er hafið í
Heiðarskóla er varðar samstarf við UMSB.


2.   1410037 - Starfsáætlun Skýjaborgar 2014-2015


Starfsáætlun Skýjaborgar 2014 - 2015 samþykkt


3.   1410040 - Erindi til fræðslunefndar vegna leikskólahúsnæðis


Fræðslu- og skólanefnd telur brýnt að bæta úr húsnæðismálum
leikskólans Skýjaborgar og bendir á að aðstaða bæði barna og
starfsmanna er um margt óviðunandi. Nefndin hvetur sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar til þess að setja húsnæðismál leikskólans í forgang.


4.   1410042 - Starfslýsingar starfsmanna leik og grunnskóla


Nefndin hefur farið yfir starfslýsingarnar og telur þörf á frekari umræðu um
þær og málinu frestað til næsta fundar.


5.   1409019 - Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og
ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.


Nefndarmenn hafa kynnt sér siðareglurnar.


6.   1410031 - Bókalistar fyrir allir lesa


Erindi lagt fram til kynningar


7.   1410034 - Kynning á breytingu á námsmati í grunnskóla


Lagt fram til kynningar


8.   1410046 - Tölvupóstur varðandi rekstrarkostnað per nemenda í
grunnskóla


Lagt fram til kynningar


9.   1410037 - Starfsáætlun Heiðarskóla 2014-2015


Starfsáætlun Heiðarskóla 2014- 2015 samþykkt.


10.   1410050 - Afmæli Heiðarskóla


Nefndin er tilbúin til þess að koma að afmælisverkefni skólans á næsta ári
í samráði við skólastjóra. Þá telur nefndin rétt að skólastjóri taki áætlaðan
kostnað vegna þess inn í fjárhagsáætlunargerð ársins 2015.


11.   1410055 - Drög að rafrænni handbók um öryggi og velferð barna í
grunnskólum


Nefndarmönnum kynnt erindið.


12.   1410056 - Drög að frumvarpi til laga um nýja stjórnsýslustofnun


Lagt fram til kynningar


13.   1410054 - Samanburður gjaldskrár leikskóla


Lagt fram til kynningar


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:12 .

Efni síðunnar