Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2009-2014

110. fundur 27. ágúst 2014 kl. 17:00 - 19:00

Hjördís Stefánsdóttir formaður, Ólafur Ingi Jóhannesson varaformaður, Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari, Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður, Guðmundur Ólafsson aðalmaður, Ragna Kristmundsdóttir áheyrnafulltrúi og Guðrún Dadda Ásmundsdóttir áheyrnafulltrúi.


Hjördís Stefánsdóttir  formaður fræðslu- og skólanefndar, ritaði fundargerð


1.   1408001 - Ósk um fjárveitingu til kaupa á Ipödum vegna aukins
nemendafjölda í Heiðarskóla.


Farið yfir erindið og það rætt. Fræðslu- og skólanefnd leggur til við
sveitarstjórn að samþykkja erindið.


2.   1408024 - Bréf til skólanefndar vegna jafnréttismála


Skólinn óskar eftir afstöðu nefndarinnar varðandi kennslu á móðurmáli
þeirra barna sem eiga annað tungumál að móðurmáli en íslensku. Einnig
er óskað eftir að sömu börn og kennarar fái íslenskukennslu. Fræðslu- og
skólanefnd felur skólastjóra að kanna möguleika á frekari útfærslu og
kostnaði vegna tilhögunarinnar.


3.   1408028 - skýrsla verkefnastjóra í Skólaþróun


Fræðslu- og skólanefnd fagna áhugaverðum skýrslum og hvetja til
samstarfs og samráðs á milli verkefnastjóranna.


4.   1408029 - Skýrsla verkefnisstjóra tæknþróunar


Fræðslu- og skólanefnd fagna áhugaverðum skýrslum og hvetja til
samstarfs og samráðs á milli verkefnastjóranna.

5.   1408026 - Ársskýrsla leik og grunnskóla 2013-2014


Fræðslu- og skólanefnd fagna áhugaverðum skýrslum og hvetja til
samstarfs og samráðs á milli verkefnastjóranna.


6.   1408027 - Notkun spjaldtölva


Skólastjóri kynnir notkun spjaldtölvanna og stefnu skólans um að vera
leiðandi í notkun tækni við kennslu.


7.   1205004 - Skólastefna Hvalfjarðarsveitar.


Skólastjóri kynnir vinnu við skólanámskrá og gert ráð fyrir að þeirri vinnu
ljúki síðar í haust.


8.   1111013 - Erindisbréf nefnda


Ný nefnd telur rétt að uppfæra erindisbréf nefndarinnar og kynna
nefndarmönnum innihald hennar.


9.   1408030 - Skýrsla 2014


Félagsmálastjóri gerði grein fyrir skýrslu vinnuskólans sumarið 2014 og mun senda skýrsluna á nefndarmenn.


10.   1408023 - Eineltisáætlun - drög


Stefnan er lögð fram til kynningar á fundinum og mun verða kynnt fyrir
starfsmönnum skóla og leikskóla


11.   1408031 - Starfsskýrsla Heiðarskóla 2012-2015


Skólastjóri kynnir starfsskýrslu skólans fyrir tímabilið 2012-2015

12.   1408032 - Skólaþing samband íslenskra sveitarfélaga 8. september 2014


Vakin er athygli á skólaþingi en skólinn mun senda fulltrúa á þingið


13.   1408033 - Að sitja í skólanefnd - leiðbeiningar

Formaður kynnir nefndarmönnum leiðbeiningar sambands íslenskra
sveitarfélaga um hlutverk nefndarmanna í setu skólanefndar.

14.   1409007 - Skýrsla umhverfismenntar í Heiðarskóla


Innihald skýrslunnar rætt


15.   1408011 - Ósk um kostnaðarþátttöku vegna leikskóladvalar utan
sveitarfélagsins.


Félagsmálastjóra falið að fá frekari upplýsingar frá umsóknaraðilum.

16.   1409002 - Afreksstyrkir reglur drög


Málið var til umræðu í fyrri fræðslu- og skólanefnd en ekki afgreitt í
sveitarstjórn. Nefndin mun nú afla sér gagna og taka málið til umfjöllunar
þegar gögn hafa borist.


17.   1409003 - Umræða um íþrótta- tómstunda og æskulýðsmál


Fræðslu- og skólanefnd hefur fullan hug á að taka tómstunda og
æskulýðsmál hjá Hvalfjarðarsveit í gegn og mun fara í
stefnumótunarvinnu í málaflokknum.

18.   1409004 - Húsnæðismál leikskólans Skýjaborgar


Fræðslu- og skólanefnd telur brýnt að huga að húsnæðismálum
leikskólans Skýjaborgar og telur það vera forgangsmál.

19.   1409005 - Geymsluaðstaða í Heiðarskóla


Formaður gerði grein fyrir vöntun á geymsluaðstæðu og var málið rætt

20.   1409006 - Beiðni um kostnaðarþátttöku leikskóla utan sveitarfélags

Félagsmálastjóra falið að fá frekari upplýsingar til að málið geti verið
afgreitt.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:58 .


Efni síðunnar