Fara í efni

Fjölskyldunefnd 2009-2015

47. fundur 18. febrúar 2015 kl. 16:30 - 18:30

Ása Helgadóttir formaður, Helgi Pétur Ottesen varaformaður, Jónella Sigurjónsdóttir 

ritari, Margrét Magnúsdóttir aðalmaður, Pétur Svanbergsson aðalmaður og Arndís 

Halla Jóhannesdóttir embættismaður.

 

Arndís Halla Jóhannesdóttir  félagsmálastjóri, ritaði fundargerð.

1.   1502023 - Reglur um fjárhagsaðstoð.

 

Yfirfara reglur um fjárhagsaðstoð - framhald.

 

Nefndin yfirfór reglur sveitarfélagsins dagsettar 3.apríl 2007 um 

fjárhagsaðstoð og leggur til smávægilegar breytingar. Félagsmálastjóri og 

formaður fjölskyldunefndar munu leggja leiðréttar reglur fyrir á næsta fundi 

nefndarinnar.

 

2.   1502024 - Reglur um liðveislu.

 

Yfirfara drög að reglum um liðveislu.

 

Nefndin yfirfór drög að reglum um liðveislu. Drögin samþykkt með 

smávægilegum breytingum. Félagamálastjóra falið að lagfæra reglurnar í 

samræmi við umræður á fundinum.

 

3.   1502025 - Reglur um akstursþjónustu.

 

Reglur um akstursþjónusta kynntar og yfirfarnar.

 

Nefndin yfirfór drög að reglum um akstursþjónustu. Félagsmálastjóra og 

formanni nefndarinnar falið að vinna þær áfram.

 

4.   1502027 - Þjónustubæklingur fyrir eldri borgara.

 

Þjónustubæklingur fyrir eldri borgara kynntur og yfirfarinn.

 

Nefndin yfirfór drög að þjónustbækling fyrir eldri borgara. Félagsmálastjóra 

og formanni nefndarinnar falið að lagfæra og setja upp.

 

5.   1502029 - Vatnsleikfimi eldri borgara.

 

Stefna og umfang vatnsleikfimi eldri borgara kynnt og yfirfarin. 

 

Umræður um vatnsleikfimi.

 

6.   1502030 - Opið hús eldri borgara.

 

Umfang og kostnaður við opið hús eldri borgara.

 

Umræður um opið hús. Félagsmálastjóra falið að kanna nánar umfang og 

kostnað við opið hús fyrir næsta fund.

 

7.   1502028 - Trúnaðarmál.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18,40 .

Efni síðunnar