Listasýning í gluggum Skýjaborgar
19.-30. október
08:00-21:30
Í tilefni Barnamenningarhátíðar Vesturlands standa börnin í leikskólanum Skýjaborg fyrir listasýningu dagana 19.–30. október.
Gluggar leikskólans verða nýttir sem sýningarrými þar sem listaverk barnanna fá að njóta sín. Íbúar og vegfarendur geta skoðað verkin og notið sýningarinnar utan frá.
Við hvetjum fólk til að kíkja við og njóta sköpunargleði barnanna.