Klappleikir með Sigga & Ingibjörgu á Barnó 2026
Verið velkomin í fjöruga fjölskyldusmiðju í félagsheimilinu Miðgarði þar sem leikur, samvera og tónlist fara saman.
Dagsetning og tími: sunnnudaginn 11. október 2026 kl. 15:00
Staðsetning: Félagsheimilið Miðgarður
Aldur: Börn á aldrinum 4–10 ára og fullorðnir. Yngri og eldri systkini eru líka velkomin.
Tungumál: Smiðjan fer að mestu fram á íslensku en er aðgengileg fjölskyldum með önnur móðurmál.
Aðgangur: Ókeypis.
Í smiðjunni leiða Siggi og Ingibjörg þátttakendur í einföldum og skemmtilegum klappleikjum og söngvum. Við klöppum, stöppum og syngjum saman — einu hljóðfærin sem við þurfum eru við sjálf!
Sigurður Ingi Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir eru reyndir smiðjuleiðbeinendur og tónlistarfólk. Sigurður er slagverksleikari og Ingibjörg söngkona. Saman skapa þau skemmtilega stund þar sem börn og fullorðnir njóta tónlistar, hreyfingar og samveru og læra nýja leiki til að taka með sér heim.
Smiðjan er hluti af dagskrá Barnó – BEST MEST VEST og styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands.