Hallgrímshátíð í Saurbæ
Hallgrímshátíð hefst með tónleikum kl. 16.00 á laugardaginn. Sönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar flytur fagra og sjaldheyrða tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar.
Á sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi og að lokum dagskrá í kirkjunni kl. 16.30 þar sem þess verður minnst að 360 ár eru liðin frá fyrstu útgáfu Passíusálmanna, en þeir voru prentaðir á Hólum í Hjaltadal árið 1666. Frú Agnes M. Sigurðardóttir predikar í messunni, prestar prestakallsins þjóna, Kór Saurbæjarprestakalls syngur og Benedikt Kristjánsson og Ásta Marý Stfánsdóttir syngja einsöng. Organisti er Jóhanna Marín Óskardóttir.
Á dagskránni kl. 16.30 flytur sr. Kristján Valur Ingólfsson erindi um útgáfur Passíusálmanna og sýning verður á nokkrum útgáfum þeirra sem gefnar hafa verið til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Hallgrímshátið í Saurbæ hlaut styrk úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar árið 2026.