Fara í efni

Fundur með Landssambandi eldri borgara

Félag eldri borgara í Hvalfjarðarsveit verður með fund í Miðgarði, 24. febrúar kl. 11, með formanni Landssambands eldri borgara, Birni Snæbjörnssyni og Oddnýju Árnadóttur framkvæmdastjóra LEB. Þar verður kynnt stefnumörkun í kjaramálum og fleira.
Súpa brauð og kaffi eftir fundinn.

Landssamband eldri borgara

  • Vinnur að hagsmuna-, velferðar- og áhugamálum aldraðra og kemur fram fyrir hönd aðildarfélaganna gagnvart Alþingi, ríkisstjórn, stjórnvöldum og öðrum sem sinna málefnum aldraðra fyrir landið í heild.
  • Er sjálfstætt starfandi samtök sem gæta hlutleysis gagnvart trúmálum og stjórnmálaflokkum.
  • Stuðlar að samvinnu félaga eldri borgara og að slík félög séu starfandi í öllum sveitarfélögum landsins.