Fara í efni

Fundur ferðaþjóna

Fulltrúum ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit er boðið til fundar miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00–18:30. Að þessu sinni ætlar Hótel Glymur að hýsa fundinn og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Fyrsti fundur ferðaþjónustuaðila á svæðinu var haldinn í september. Þar sköpuðust góðar og uppbyggilegar umræður um samstarf, tækifæri og framtíð ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit. Nú höldum við samtalinu áfram.

Fundurinn er opinn öllum en fulltrúar ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu.