Foreldrafræðsla um umferðaröryggi barna og ungmenna
24.-25. nóvember
17:30-21:00
Hvernig geta foreldrar stuðlað að auknu öryggi barna og ungmenna í umferðinni?
Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 17:30 verður boðið upp á fræðslukvöld í Félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit, þar sem fjallað verður um umferðaröryggi barna og ungmenna. Sérstök áhersla verður lögð á notkun rafhlaupahjóla og annarra smáfarartækja og hvernig foreldrar geta stutt börn sín við að taka öruggar ákvarðanir í umferðinni.
Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá Samgöngustofu og Unnar Þór Bjarnason samfélagslögga sjá um fræðsluna.
Öll áhugasöm eru hjartanlega velkomin.