Vinnuskóli sumarið 2026
19. janúar 2026
Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða í eftirfarandi sumarstörf sumarið 2026.
- Umsjónaraðili Vinnuskóla.
Um er að ræða starf frá 14. maí til 15. ágúst.
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
- Flokkstjóri Vinnuskóla.
Um er að ræða starf frá 14. maí til 15. ágúst.
Umsækjendur skulu vera 18 ára eða eldri.
Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi.
Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 13.febrúar nk. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vef Hvalfjarðarsveitar og inn á alfred.is. Nánari upplýsingar um störfin gefur Anna Guðrún Alexandersdóttir, verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar, á netfanginu
fristund@hvalfjardarsveit.is eða í síma 433-8500.