Fara í efni

Messa í Hallgrímskirkju Saurbæ

Messa kl. 14.00 sunnudaginn 16. ágúst í Hallgrímskirkju Saurbæ.
Sameiginleg guðsþjónusta Grensás- og Saurbæjarsafnaða.

Nýlega fékk Hallgrímskirkja orgel að gjöf frá Grensáskirkju. Orgelið var áður í notkun í Grensáskirkju en var helgað til þjónustu í Hallgrímskirkju á páskadag. Kór Saurbæjarprestakalls og Kór Grensáskirkju syngja. Organisti Ásta Haraldsdóttir.

Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, sr. Þráinn Haraldsson og sr. Þorvaldur Víðisson þjóna.

Fjölmennum í messu og tökum vel á móti gestum okkar frá Grensáskirkju.
Messukaffi í Saurbæ.
Verið velkomin til kirkju.