Fara í efni

Sveitarstjórn

190. fundur 10. febrúar 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.Sveitarstjórn - 189

1501004F

Fundargerðin framlögð.

2.Fjölskyldunefnd - 46

1501005F

Fundargerðin framlögð.

3.Fræðslu- og skólanefnd - 115

1501007F

Fundargerðin framlögð.

4.25. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

1502011

Fundargerðin framlögð.

5.Viðauki fjárhagsáætlunar 2014.

1410013

Viðauki jan.-des. 2014. Frá fjármálastjóra.
Framlagður viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir viðaukanum.
Oddviti lagði til að framlagður viðauki yrði samþykktur.
Samþykkt samhljóða 7-0.

6.Beiðni um afnot af Fannahlíð til fundahalda.

1502005

Erindi frá kvenfélaginu Lilju, dagsett 4. febrúar 2015.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að heimila Kvenfélaginu Lilju að nýta Félagsheimilið Fannahlíð til fundarhalda á árinu 2015 án endurgjalds. Ákvörðunin verði tekin til endurskoðunar að þeim tíma liðnum. Sveitarstjórn fagnar því að félagsstarf í sveitarfélaginu sé í blóma og telur jákvætt ef félagsheimili sveitarfélagsins séu nýtt til fundarhalda."
Hjördís Stefánsdóttir vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Samþykkt samhljóða 7-0.

7.Rekstur á sundlauginni að Hlöðum sumarið 2015.

1502007

Erindi frá Guðjóni Sigmundssyni.
Erindi framlagt.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela oddvita og sveitarstjóra að leita leiða til að tryggja opnun sundlaugar á Hlöðum sumarið 2015."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

8.Fagleg- og fjárhagsleg úttekt á starfsemi Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.

1502009

Verkefnatillögur.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við R3-Ráðgjöf ehf. og Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri um fjárhagslega og faglega úttekt á leik- og grunnskólastarfi í Hvalfjarðarsveit."
Samþykkt samhljóða 7-0.
Viðauki 1. Sveitarstjóri lagði fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna framangreindrar tillögu að fjárhæð kr. 1.200.000- á 04020-4391. Kostnaði verði mætt af óvissum útgjöldum 21085-5971.
Viðauki 1 borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða 7-0.

9.Framkvæmd líðan könnunnar meðal starfsmanna Hvalfjarðarsveitar.

1502010

Verkefnatillögur.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við Pro-Active um framkvæmd fræðslu- og líðan könnunar meðal starfsfólks Hvalfjarðarsveitar."
Samþykkt samhljóða 7-0.
Viðauki 2. Sveitarstjóri lagði fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna framangreindrar tillögu að fjárhæð kr. 500.000- á 21069-5971. Kostnaði verði mætt af óvissum útgjöldum 21085-5971.
Viðauki 2 borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða 7-0.

10.Kútter Sigurfari - staða mála.

1502004

Frá Akraneskaupstað, dagsett 21. janúar 2015.
Erindi framlagt.

11.Samstarfssamningar við Akraneskaupstað.

1412019

Afgreiðsla frá fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar sem haldinn var þann 15. janúar.
Erindi framlagt.

12.48. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1502003

Fundargerðin lögð fram.

13.824. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1502006

Fundargerðin lögð fram.

14.Skýrsla sveitarstjóra.

1502013

Frá sveitarstjóra.
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar