Fara í efni

Sveitarstjórn

171. fundur 30. apríl 2014 kl. 17:40 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Sigurður Sverrir Jónsson oddviti
  • Ása Helgadóttir varamaður
  • Sævar Ari Finnbogason ritari
  • Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Björgvin Helgason 1. varamaður
  • Brynjar Ottesen 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðar dagskrár.
Að auki sat fundinn sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

1.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 38

1404004F

SAF fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. Fundargerðin framlögð.
  • 1.1 1404040 Framkvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu Svínadalsvegar(502) Leirársveitarvegur - Kambshóll.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 38 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt Vegagerðinni vegna endurbyggingar Leirársveitarvegar að undangenginni umsögn Minjastofnunar Íslands og grenndarkynningu fyrir landeigendum Tungu, Hól, Hlíðarfæti, Eyri og Kambshól sbr. 5. mgr. 13. gr. og 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kostnaður við framkvæmdaleyfi er ákveðið kr. 67.700,-. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar SAF ræddi erindið. Lagði til við sveitarstjórn að samþykkta erindi frá Vegagerðinni varðandi að veita framkvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu Svínadalsvegar nr 502. Kostnaður við framkvæmdaleyfi er kr 67.700. Skipulagsfulltrúa er falið að ganga frá leyfisveitingunni. Tillagan er samþykkt samhljóða 7-0.
  • 1.3 1404001 Hléskógar 8 - Sumarhús
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 38 USN nefnd legggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna fyrir lóðarhöfum Hléskóga 3, 5, 6, 10 og Bláskógum 7 og 9 sbr.44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um er að ræða óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 1.6 1404039 Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016, 495. mál.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 38 Nefndin leggur áherslu á að við framkvæmd samgönguáætlunar, mál 495, verði lögð áhersla á að auka öryggi á hættulegum gatnamótum þjóðvegar 1 í Hvalfjarðarsveit, t.a.m. við Melahverfi, gatnamót þjóðvegar 1 og Hvalfjarðarvegar og þjóðvegar 1 og Leirársveitarvegar. Nefndin leggur áherslu á að meira fjármagn verði veitt í viðhald vega og lagningu slitlags á tengivegi. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 1.8 1403029 Aðalskipulagsbreyting á stefnumörkun iðnaðarsvæða.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 38 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að leyta umsagnar Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar og kynna lýsingu fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar fyrir almenningi, aðliggjandi sveitarfélögum, Faxaflóaahöfnum, Norðuráli Elkem skv. 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

2.Beiðni um umsögn vegna fjárfestingarverkefnis.

1404014

Gögn send rafrænt síðar.
LJ fór yfir erindið og gerði grein fyrir fundi með fulltrúum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en erindi barst frá ráðuneytinu varðandi ívilnun vegna fjárfestingarverkefnis á vegum Silicor Materials dagsett 2. apríl. Lagði fram svohljóðandi bókun;

Fulltrúum Hvalfjarðarsveitar hafa verið kynntar hugmyndir Silicor Materials, er varða byggingu og rekstur sólarkísilverksmiðju í landi Kataness, við Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur tekið jákvætt í hugmyndir um fyrirhugaða uppbyggingu og hefur t.a.m. unnið að breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem eru til þess fallnar að fyrirhuguð framkvæmd geti átt sér stað. Stefnt er að að þeirri vinnu ljúki í ágúst eða september 2014, samhliða verður unnið að breytingum á deiliskipulagi á svæðinu, líkt og skipulagslög heimila.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar styður verkefnið og álítur að það geti haft jákvæð áhrif á þróun byggðar og eflingu atvinnulífs á Vesturlandi.
SAF ræddi fram komna bókun og undirbúningsvinnu við verkefnið lýsti yfir stuðningi við verkefnið.
Bókunin samþykkt samhljóða 7-0.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar