Fara í efni

Sveitarstjórn

149. fundur 28. maí 2013 kl. 16:00 - 16:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Sigurður Sverrir Jónsson oddviti
  • Ása Helgadóttir varaoddviti
  • Sævar Ari Finnbogason ritari
  • Hallfreður Vilhjálmsson vararitari
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritar fundargerð.
  • Björgvin Helgason
Fundargerð ritaði: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.Sveitarstjórn - 148

1304004F

LJ gerði grein fyrir að Hjörtur Hans Kolsöe skipulags- og byggingarfulltrúi hefur látið af störfum og eru honum þökkuð vel unnin störf fyrir Hvalfjarðarsveit. Lagði fram minnisblað varðandi auglýsingar og fyrirkomulag vegna skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa en um er að ræða tímabilsbundið fyrirkomulag. Fundargerðin framlögð

2.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 24

1305002F

LJ lagði til að samþykkja afgreiðslurnar. SAF fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. Fundargerðin framlögð
  • 2.1 1305020 Akrakot. Óskað eftir stækkun lóðar
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 24 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindið. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.3 1305031 Skálatangi ósk um niðurrif
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 24 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindið. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.4 1305021 Norðurál. Flokkunarstöð, Framkvæmdaleyfi.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 24 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindið. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.7 1305033 Melar Vélageymsla
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 24 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að leitað verði eftir meðmælum Skipulagsstofnunnar í samræmi við 1.mgr. bráðabirgðaákvæðis skiplagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

3.2. sameiginlegur fundur sveitarstjórnar og ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar.

1305027

SSJ lagði til að vísa fundargerðinni til atvinnu- og menningarmálanefndar. Fundargerðin framlögð

4.35. fundur fjölskyldunefndar.

1305026

Tillaga 1. Liðveisla, fyrir íbúa Herdísarholts. Samþykkt að hámarksfjöldi liðveislutíma verði 4 klst. í viku fyrir hvern einstakling.
Ennfremur samþykkt að liðveitendur skili dagbók mánaðarlega til félagmálastjóra um verkefni mánaðarins.
Tillagan samþykkt samhljóða 6-0

Tillaga 2. Liðveisla, hámarks akstur í liðveislu fatlaðra íbúa í Hvalfjarðarsveit. Samþykkt að greiða 210 km á mánuði fyrir hvern einstakling.
Tillagan samþykkt samhljóða 6-0

Tillaga 3. Nýting Hvalfjarðarsveitar á Skagastöðum, virknimiðstöð Vinnumálastofnunar og Akranesbæjar.
Samþykkt að nýta boð Akranesbæjar fyrir ungmenni í Hvalfjarðarsveit sem hafa ekki rétt á atvinnuleysisbótum, greiða skal kr. 36.000 á mánuði fyrir hvern einstakling.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

HHJ gerði grein fyrir lið 3, Skagastaðir.
HHJ lýsir sig vanhæfa til þess að fjalla um tillögu 1 og 2 og víkur af fundi undir lið 1 og 2.
SAF ræddi fram komnar tillögur og lagði til að breyta orðalagi tillögunnar úr Herdísarholti í Hvalfjarðarsveit.
Fundargerðin framlögð.
HHJ tekur aftur þátt í fundinum

5.Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.

1211014

A) vinnufundur sveitarstjórnar 22. maí 2013. B) áhugi á lagningu og/eða rekstur Ljósleiðaranets, svör bárust frá Mílu, Rafteymi, Gagnaveitu Reykjavíkur og eMax.
LJ ræddi undirbúning verkefnisins og fram komnar tillögur. Lagði fram viðbótartillögu undir E lið, viðbót D liður.

Tillaga A) Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, á grundvelli fyrri samþykktar sveitarstjórnar frá 23. apríl um ljósleiðaravæðingu að miða skuli tengingar íbúðarhúsa við fasta búsetu og lögheimili íbúa þann 23. apríl 2013

Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum SSJ SAF HHJ ÁH.
HV BH SÁ greiða atkvæði gegn tillögunni.

Tillaga B) Samþykkt var að þeir íbúar sem óska eftir tengingu íbúðarhúsa með fasta búsetu og lögheimili eftir 23. apríl og óska eftir tengingu við ljósleiðara greiði raunkostnað við framkvæmd tenginga auk mánaðargjalds.

Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum SSJ SAF HHJ ÁH.
HV BH SÁ greiða atkvæði gegn tillögunni.
HV gerði grein fyrir atkvæði sínu.

Tillaga C) Kostnaður við jarðvinnu og tengingar sumarhúss greiðist af sumarhúseigenda sjálfum. Heimtaug skal lögð skv. fyrirmælum sveitarfélagsins frá sumarhúsi að tengipunkti við stofnæð. Ljósleiðarheimtaugin verður frágengin að fullu inn fyrir húsvegg á kostnað sumarhúsaeigenda. Lagnir eru í eigu sveitarfélagsins.
Að auki greiðist mánaðargjald kr 2.375 á mánuði án/ vsk. eða 2.980 m/ vsk..
HV ræddi lagnir í sumarhúsahverfin. SAF svaraði fram kominni fyrirspurn.
Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum SSJ SAF HHJ ÁH.
HV BH SÁ sitja hjá við afgreiðsluna.

Tillaga D) Kostnaður við jarðvinnu og tengingar greiðist af fyrirtækjum. Heimtaug skal lögð skv. fyrirmælum sveitarfélagsins frá fyrirtæki að tengipunkti við stofnæð. Ljósleiðarheimtaugin verður frágengin að fullu inn fyrir húsvegg á kostnað fyrirtækja.
Að auki greiðist mánaðargjald kr 2.375 á mánuði án/ vsk eða 2.980 m/ vsk
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

E) Endurstaðfesting sveitarstjórnar á samþykktum frá 22. janúar 2013.

a) Íbúahús/íbúðir; mánaðargjald verði kr 2.375 á mánuði án/ vsk eða 2.980 m/ vsk. Miðað skal við að gjaldskráin gildi fyrir íbúðarhús/íbúð (skv skipulagi) í Hvalfjarðarsveit og skuldbinding í 2 ár.
HV setur fyrirvara um mánaðargjald, gerði grein fyrir atkvæði sínu. SSJ svaraði fram komnum fyrirspurnum SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. BH ræddi fram komnar tillögur.

Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum SSJ SAF HHJ ÁH.
HV BH SÁ sitja hjá við afgreiðsluna.


b) Sumarhús; mánaðargjald verði kr 2.375 á mánuði án/ vsk eða 2.980 m/ vsk.

c) Fyrirtæki; Kostnaður við jarðvinnu og tengingar greiðist af fyrirtækjunum sjálfum auk mánaðargjalds.

D) Í öllum tilfellum er miðað við að fyrir liggi fyrir samkomulag við viðkomandi landeiganda og að fullt samráð verði haft við hann varðandi lagnaleiðir. Gera skal ráð fyrir að fjarskiptafélag fái að leggja ljósleiðaralagnir um land viðkomandi landeiganda.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


B) Áhugasamir aðilar sem óska eftir að koma að lagningu og eða rekstri ljósleiðaranets. Mila, Rafteymi, Gagnaveita Reykjavíkur og eMax sendu inn upplýsinga

LJ fór yfir að nú þegar hefur verið fundað með þremur af þessum aðilum og síðasti fundur er fyrirhugaður næsta fimmtudag.
HV ræddi fram komnar tillögur og fyrirspurnir. Ræddi hugmyndir að bjóða þeim fjórum fyrirtækjum sem sendu inn hugmyndir að sitja kynningarfundinn 29. maí. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum og ábendingum. SAF ræddi tillögurnar sem fyrir liggja td. varðandi áskriftargjald sumarhúsa. Lagði til að taka út skilyrði fyrir föstu árgjaldi.

Erindið framlagt.

6.Tónlistarskólinn, fagnefnd.

1305041

Kosning áheyrnarfulltrúa, sjá erindi frá fjölskyldustofu Akraneskaupstaðar.
LJ gerði grein fyrir fundi sem haldinn var 21. maí í fjölskylduráði. SSJ lagði til að Ása Helgadóttir verði áheyrnarfulltrúi þegar fjallað er um mál Tónlistarskóla Akraness. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

7.Beiðni um fjármagn vegna girðingar framkvæmdar við Heiðarskóla (nýr landshluti úr Leirárlandi)

1305043

Erindi frá umsjónarmanni fasteigna Hvalfjarðarsveitar.
LJ ræddi erindið og lagði til að samþykkja með bókun; Sveitarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 509.700 kr samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 63. gr. stjórnsýslulaga nr. 138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með fjárveitingu af fjárhagsliðnum óviss útgjöld 5971-2185. HV ræddi fram koma kostnaðaráætlun. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. SSJ svaraði fram kominni fyrirspurn. SAF spurðist fyrir varðandi næsta lið. SSJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. Tillaga um framkvæmd við girðingar samþykkt samhljóða 7-0.

8.Kaffiveitingar 17. júní 2013.

1305048

Erindi frá kvenfélaginu Lilju, dagsett 23. maí, 2013.
SSJ ræddi fram komið erindi. Lagði til að samþykkja að styrkja erindið um 100 þúsund kr. og fjármögnun komi af liðnum menningarmál. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

9.Uppsögn Hannessínu Ásgeirsdóttur, sem aðalmaður í barnaverndarnefnd Borgarbyggðar.

1305047

Kosning aðalmanns í barnaverndarnefnd Borgarbyggðar.
SSJ ræddi erindið og lagði til að Halldóra Halla Jónsdóttir verði aðalmaður. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

10.Ársreikningur 2012, Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili.

1305040

Ársreikningurinn liggur frammi.
Erindið framlagt

11.26. - 28. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1305042

Fundargerðirnar framlagðar

Fundi slitið - kl. 16:00.

Efni síðunnar