Fara í efni

Sveitarstjórn

207. fundur 10. nóvember 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason, oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.Sveitarstjórn - 206

1510004F

Fundargerð framlögð.

2.Fræðslu- og skólanefnd - 122

1510006F

Fundargerð framlögð.
DO fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.
  • Fræðslu- og skólanefnd - 122 Nefndin vísar erindi áfram til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir að fela oddvita, sveitarstjóra og formanni fræðslu- og skólanefndar að fara yfir atriði sem nefnd eru varðandi tilhögun skólaaksturs og leggja niðurstöðu sína fyrir sveitarstjórn."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Fræðslu- og skólanefnd - 122 Nefndin óskar eftir að vinna við samanburð á rekstri tónlistarskóla í öðrum grunnskólum verði kláruð og kynnt fyrir fræðslu- og skólanefnd. Lagt er til að þessi samanburður verði lagður til grundvallar við endurskoðun á tónlistarnámi í Hvalfjarðarsveit. Erindinu verður vísað áfram til Viðræðuhóps um samstarfssamninga við Akraneskaupstaðs. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir að hið fyrsta verði haldinn fundur aðila sveitarstjórnar í viðræðuhópi um samstarfssamninga og fulltrúa í fræðslu- og skólanefnd um tónlistarnám í Hvalfjarðarsveit."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Fræðslu- og skólanefnd - 122 Nefndin tekur jákvætt í erindið og óskar eftir að fjármagn fylgi varðandi afmælið í gerð næstu fjárhagsáætlunar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir að vísa beiðni skólastjóra um fjárframlag vegna 50 ára afmælis Heiðarskóla til gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2016."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Fjárhagsáætlun 2016-2019.

1509002

Fyrri umræða.
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri fór yfir og kynnti greinargerð sína í tengslum við framlagningu fjárhagsáætlunar Hvalfjarðarsveitar 2015-2019.
Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2016-2019 til síðari umræðu í sveitarstjórn."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Álagning lóðarleigu.

1511009

Erindi frá oddvita.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að breyta álagningu lóðarleigu ársins 2015 í þéttbýli úr 2,0% af fasteignamati í 1,25% af fasteignamati. Sveitarstjóra og fjármálastjóra verði falið að endurreikna álagninguna og leggja fyrir sveitarstjórn tillögu um endurgreiðslu til viðkomandi lóðarhafa."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Afnot af íþróttamannvirkjum í Heiðarborg.

1511002

Erindi frá Ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að ræða við fulltrúa Ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar um áform félagsins í vetur."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Samningur við landeigendur Hlíðarfótar um vatnstökurétt.

1511007

Erindi frá Vatnsveitufélagi Hvalfjarðarsveitar sf.
Erindið framlagt.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn beinir því til stjórnar Vatnsveitufélagsins að kynna niðurstöðu Orkustofnunar varðandi nýtingarleyfin fyrir stjórn Veiðifélags Laxár í Leirársveit."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Framkvæmdir Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf. 2016.

1511006

Erindi frá Vatnsveitufélagi Hvalfjarðarsveitar sf.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að vísa framlagðri framkvæmdaáætlun Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2016 til gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2016."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2016.

1511004

Frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fyrir árið 2016."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Safnasvæðið - fjárhagsáætlun 2016.

1510037

Erindi frá Akraneskaupstað.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn tekur jákvætt í tillögu um að viðhald fasteigna safnsins verði fært undir umsjón eignasjóðs Akraneskaupstaðar en bíður eftir tillögu um nánari útfærslu sem væntanleg er frá Akraneskaupsstað. Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu menningar- og safnanefndar um breytingu á gjaldskrá safnasvæðisins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.831. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1511003

Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.128.,129. og 130. fundir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.

1511005

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

12.42. stjórnarfundur Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf.

1511008

Fundargerð lögð fram til kynningar.

13.Skýrsla sveitarstjóra.

1502013

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar