Fara í efni

Landbúnaðarnefnd 2009-2021

12. fundur 31. ágúst 2016 kl. 20:30 - 22:30

Daníel Ottesen, Lilja Grétarsdóttir og Baldvin Björnsson formaður

1.  Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2016

 

A.  Leitarsvæði Núparéttar. Skv. nýrri fjallskilareglugerð nær leitarsvæði 

Núparéttar nú að merkjum Hlíðarfótar og Eyrar í Svínadal. Fyrri leit 

er laugardaginn 10. sept og seinni leit laugardaginn 24. sept. Fyrri rétt 

er sunnudaginn 11. sept. kl.13 en seinni rétt er laugardaginn 24. sept 

þegar smölun lýkur. Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Magnús Ingi

Hannesson. Réttarstjóri er Baldvin Björnsson. Marklýsingamenn eru 

Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson. Skilamenn í Hornsrétt eru 

Baldvin Björnsson og Hannes Adolf  Magnússon.

 

B.  Leitarsvæði Reynisréttar. Fyrri leit er laugardaginn 17. sept og seinni 

leit laugardaginn 24. sept. Réttað er að smölun lokinni. Leitarstjórar

eru Bjarki Borgdal Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson. Réttarstjóri er 

Lilja Guðrún Eyþórsdóttir. Marklýsingamenn eru Sigurður 

Hjálmarsson og Haraldur Benediktsson.

 

C.  Leitarsvæði Svarthamarsréttar. Fyrri leit er föstudaginn 16. og 

laugardaginn 17. sept. og seinni leit laugardaginn 1. og sunnudaginn 

2. okt. Fyrri rétt er sunnudaginn 18. sept. kl. 10 og seinni rétt 

sunnudaginn 2. okt. þegar leit lýkur. Leitarstjóri er Guðmundur 

Sigurjónsson. Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir. 

Marklýsingamenn eru Guðmundur Friðjónsson og Guðmundur Brynjólfur Ottesen. 

Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.

 

2.  Kaffiveitingar

 

Nefndin leggur til að sveitarstjórn sjái til þess að við réttir í sveitarfélaginu verði 

kaffiveitingar og salernisaðstaða að höfðu samráði við réttarstjóra. 

3. 1608012-Samþykkt ályktun á Búnaðarþingi 2016-Fjallskil.

Erindi vísað til Landbúnaðarnefndar á 223. fundi sveitarstjórnar.

Formanni nefndarinnar falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum. 

 

Fundargerð upplesin. 

Fleira var ekki gert

 

Fundi slitið kl: 21:40 

 

Efni síðunnar