Fara í efni

Landbúnaðarnefnd 2009-2021

10. fundur 20. ágúst 2015 kl. 20:15 - 22:15

Daníel Ottesen, Lilja Grétarsdóttir og Baldvin Björnsson

1.  Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2015

 

A.  Leitarsvæði Núparéttar. Skv. nýrri fjallskilareglugerð nær leitarsvæði 

Núparéttar nú að merkjum Hlíðarfótar og Eyrar í Svínadal. Fyrri leit 

er laugardaginn 12. sept og seinni leit laugardaginn 26. sept. Fyrri rétt 

er sunnudaginn 13. sept. kl.13 en seinni rétt er laugardaginn 26. sept 

þegar smölun lýkur. Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Magnús 

Hannesson. Réttarstjóri er Baldvin Björnsson. Marklýsingamenn eru 

Helgi Bergþórsson og Sigurður Valgeirsson. Skilamenn í Hornsrétt eru 

Baldvin Björnsson og Hannes Magnússon.

 

B.  Leitarsvæði Reynisréttar. Fyrri leit er laugardaginn 19. sept og seinni 

leit laugardaginn 26. sept. Réttað er að smölun lokinni. Leitarstjórar

eru Bjarki Borgdal Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson. Réttarstjóri er 

Lilja Guðrún Eyþórsdóttir. Marklýsingamenn eru Sigurður 

Hjálmarsson og Haraldur Benediktsson.

 

C.  Leitarsvæði Svarthamarsréttar. Fyrri leit er föstudaginn 18. og 

laugardaginn 19. sept. og seinni leit laugardaginn 3. og sunnudaginn 

4. okt. Fyrri rétt er sunnudaginn 20. sept. kl. 10 og seinni rétt 

sunnudaginn 4. okt. þegar leit lýkur. Leitarstjóri er Guðmundur 

Sigurjónsson. Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir. 

Marklýsingamenn eru Guðmundur Friðjónsson og Brynjólfur Ottesen. 

Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Ármannsson og Jón Ottesen.

 

2.  Kaffiveitingar

 

Nefndin leggur til að sveitarstjórn sjái til þess að við réttir í sveitarfélaginu verði 

kaffiveitingar og salernisaðstaða að höfðu samráði við réttarstjóra. 

 

Fundargerð upplesin. 

Fleira var ekki gert

 

Fundi slitið kl: 21:40 

Efni síðunnar