Fara í efni

Sveitarstjórn

209. fundur 08. desember 2015 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson 

aðalmaður og Daníel Ottesen aðalmaður.

 

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Björgvin Helgason, oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.   1511004F - Sveitarstjórn - 208

 

Fundargerð framlögð.

 

2.   1510005F - Fjölskyldunefnd - 54

 

Fundargerð framlögð.

ÁH fór yfir fundargerðina og skýrði einstök atriði hennar.

 

2.1.  1510030 - Jafnréttisstefna

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fresta afgreiðslu á 

Jafnréttisstefnu Hvalfjarðarsveitar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

3.   1511006F - Fræðslu- og skólanefnd - 123

 

Fundargerð framlögð.

DO fór yfir fundargerðina og skýrði einstök atriði hennar.

 

3.1.  1511024 - Afreks- og styrktarsjóður

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrirliggjandi reglur fyrir 

Afrekssjóð Hvalfjarðarsveitar með áorðnum breytingum."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

3.2.  1510050 - Beiðni um áframhaldandi leikskóladvöl á Akranesi 

vegna óbreyttra aðstæðna.

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu: 

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir afgreiðslu fræðslu- og 

skólanefndar frá 26. nóvember sl. á beiðni um áframhaldandi 

leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum.

AH og HS sitja hjá við afgreiðsluna.

 

3.3.  1511031 - Drög að tillögu - viðmið um akstur skólabifreiða.

 

Oddviti gerði grein fyrir fyrirliggjandi tillögu með áorðnum breytingum.

HS bar upp svohljóðandi breytingartillögu við 3 lið 

viðmiðunarreglnanna og að hún orðist þannig:

"Þrátt fyrir umrætt viðmið er heimilt að víkja frá viðmiðinu þannig að 

öryggi nemenda sé tryggt í hvívetna vegna tiltekinna aðstæðna sem 

skapast geta t.d. vegna veðurs og/eða vinda. Slíkt mat er í höndum 

skólabílstjóra og skólastjóra en við það mat skulu hagsmunir barna 

hafðir að leiðarljósi."

Tillaga HS borin undir atkvæði og var hún felld með 6 atkvæðum gegn 

1.

Oddviti bar upp fyrrgreinda tillögu sína með áorðnum breytingum og 

var hún samþykkt með 6 atkvæðum. HS sat hjá við afgreiðsluna.

Ofangreind tillaga oddvita borin undir atkvæði og samþykkt með 6 

atkvæðum.

 

4.   1512006 - 35. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

 

- Stefnumótun í menningar- og atvinnuþróunarmálum í Hvalfjarðarsveit.

 

Fundargerð framlögð.

JS fór yfir fundargerðina og skýrði einstök atriði hennar.

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa stefnumótuninni til 

áframhaldandi umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

5.   1412022 - Beiðni um fjárhagslega aðstoð vegna endurbóta við 

Hallgrímskirkju í Saurbæ.

 

Kostnaðaráætlun fyrir nauðsynlegt viðhald á ytra byrgði kirkjunnar. Það er 

ósk sóknarnefndarinnar að sveitarfélagið geti komið að þessu verkefni með 

sókninni allt að 10 % af heildarkostnaði framkvæmdarinnar.

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita kr. 1.200.000- til 

verkefnisins að því tilskildu að heildarfjármögnun viðhaldsverkefnisins hafi 

verið tryggð."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

6.   1512007 - Frestun sveitarstjórnarfundar.

 

Tillaga oddvita og sveitarstjóra. 

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að haldinn verði aukafundur í 

sveitarstjórn þann 15. desember nk og komi hann í stað næsta reglulega 

fundar sveitarstjórnar sem vera á þann 22. desember nk. Fyrsti fundur 

sveitarstjórnar á árinu 2016 verði haldinn þann 12. janúar nk."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.   1511032 - Drög að nýrri gjaldskrá Slökkviliðs Akraness og 

Hvalfjarðarsveitar.

 

Bæjarráð Akraness samþykkir gjaldskrá Slökkviliðsins.

 

Bréf Akraneskaupstaðar lagt fram til kynningar.

 

8.   1512005 - Almannavarnir sveitafélaga - gerð leiðbeininga um störf 

almannavarnanefnda.

 

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Leiðbeiningar um störf 

almannavarnanefnda fylgir með.

 

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga lagt fram til kynningar.

 

9.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá 

síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:00 .

Efni síðunnar