Fara í efni

Vinnuskóli sumarið 2021

Hvalfjarðarsveit auglýsir Vinnuskóla Hvalfjarðarsveitar sumarið 2021 fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára.

Vinnuskólinn verður 7 tíma á dag fjóra daga vikunnar.

  • 8. bekkur,  7. júní til 5. júlí
  • 9. bekkur, 7. júní til 13. ágúst
  • 10. bekkur, 7. júní til 13. ágúst.
  • Ungmenni 16 til 17 ára, 7. júní til 13. ágúst.

Umsóknarfrestur er til og með 24. maí nk.

Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vef Hvalfjarðarsveitar, upplýsingar um störfin gefur Ása Líndal, frístunda- og menningarfulltrúi (fristund@hvalfjardarsveit.is)