Fara í efni

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í Skýjaborg

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með um 34 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. 

Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku. 

Skýjaborg auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar: 

  • Leikskólakennari/leiðbeinandi 100% staða. 
  • Leikskólakennari/leiðbeinandi 70% staða. 
  • Inni í annarri stöðunni er 14,3% vinna sem aðstoðarmatráður. 

 Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfisbréf til kennslu  
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir leikskólastjóri í síma 433-8530. Umsóknarfrestur til og með 24. maí
næstkomandi og skal senda umsóknir ásamt starfsferilsskrá í tölvupósti á netfang leikskólastjóra: eyrun@hvalfjardarsveit.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu. Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags.