Fara í efni

Kristjana Stefáns og Svavar Knútur á Bjarteyjarsandi

Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Nú ferðast þau um landið þvert og endilangt með splunkunýja dúettaplötu í farteskinu, en hún ber nafnið "Faðmlög".

Tónleikarnir á Bjarteyjarsandi hefjast kl. 20.00
Miðaverð er kr. 4.000 og frítt fyrir börn 14 ára og yngri.