Verkefnisstjórn fyrir nýbyggingu Heiðarskóla, fundur nr. 47
Dags. 30.12.2011
FUNDARGERÐ
47. fundur verkefnisstjórnar vegna nýbyggingu Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.
Haldinn 30.12. 2011 kl.09.50 í stjórnsýsluhúsinu að Innrimel 3.
Mættir:
Ólafur Jóhannesson, Björgvin Helgason. Einnig mætt Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri.
Mál til afgreiðslu
1. Lokauppgjör.
Farið yfir drög að samningi um verklok, rætt um tillögur eftirlits um frágang samnings, ásamt ábendingum Jóns Hauks Haukssonar lögfræðings sem sat fundinn undir þessum lið.
JHH yfirgaf svo fundinn
Rætt var símleiðis við Samúel verkeftirlitsmann hjá THG. Þar á meðal um kreditreikning vegna gluggatjalda. Farið yfir útskýringar á áður umbeðnum upplýsingum frá eftirliti. Sbr. Tölvupóst 29 des. 2011.
Nefndin leggur til við sveitarstjóra að ganga frá uppgjöri eins og rætt var um á fundinum
2. Eftir er að vinna aukaverk við innréttingar í ritaraherbergi og verkmenntastofu.
Greitt verður fyrir þau verk þegar þau hafa verið unnin.
Fleira ekki gert fundi slitið kl. 11:32.
Ólafur Jóhannesson formaður
Björgvin Helgason
Laufey Jóhannsdóttir
Til baka