Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar, fundur nr. 2
Dags. 15.12.2011
Fundargerð 2. fundur ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar.
Dagsetning 15.12.11
Haldinn í grunnskóla Hvalfjarðarsveitar,fimmtudaginn 14. desember 2011 og hófst hann kl. 17:00.
Mættir:
Ágústa Líf Jónsdóttir, Finnur Ari Ásgeirsson, Sindri Már Sigurbaldursson, Halldór Sigurðarson, Heiðmar Eyjólfsson, Svandís Lilja Stefánsdóttir. Sigrún Bára Gautadóttir komst ekki og boðaði forföll. Einnig sat fundinn Björn Fálki.
Dagskrá:
1. Setning fundar.
Formaður setti fund og bauð fólk velkomið.
2. Fundargerð 1.fundar ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar 13.október 2011
Formaður fór yfir fundargerð 1.fundar.
3. Ungmennaþing í Hvalfjarðarsveit
Fyrirhugað er að halda ungmennaþing í Hvalfjarðarsveit fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára þar sem þau geta komið sínum málefnum á framfæri til ungmennaráðs. Fyrirhugað er að halda þingið miðvikudaginn 18.janúar 2012 kl. 18.00-22.00 í sal grunnskóla og verða eftirfarandi málaflokkar til umræðu samgöngur, menningarmál og viðburðir tengdir ungu fólki, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamál og frjáls umræða.
Bókun: Ungmennaráð biðlar til fræðslu- og skólanefndar að styðja ungmennaráð í því að standa fyrir ungmennaþingi í Hvalfjarðarsveit.
4. Önnur mál
Umræður um hlutverk ungmennaráðs.
Bókun: Ungmennaráð óskar eftir því að sveitarstjórn sem og aðrar nefndir í Hvalfjarðarsveit sendi erindi til umsagnar til ráðsins sem varða ungt fólk líkt og kemur fram í 3.gr í starfsreglum ungmennaráðs.
Fleira gerðist ekki. Fundi slitið kl. 18:15
Til baka