Stýrihópur um skólastefnu 2012-2015, fundur nr. 3
Dags. 14.11.2011
FUNDARGERÐ
3. fundur stýrihóps um skólastefnu 2012-2015
Haldinn mánudaginn 14. nóvember 2011 kl. 12:30 í Heiðarskóla.
Mættir:
Birna María Antonsdóttir, Ingibjörg Hannesdóttir og Hlynur Máni Sigurbjörnsson sem ritar fundargerð.
Auk þeirra Arna Arnórsdóttir og Sævar Ari Finnbogason.
Fundargerð:
1. Skólaþing fyrir kennara og starfsfólk sameinaðs leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
Skólaþingið var sett af formanni fræðslu- og skólanefndar, Birnu Maríu Antonsdóttur. Hún kynnti dagskránna og gaf að því loknu fyrirlesara dagsins, Önnu Kristínu Sigurðardóttur, forseta kennaradeildar við H.Í., orðið. U.þ.b. 30 starfsmenn hlíddu á fyrirlesturinn og báru upp fyrirspurnir jafnóðum.
2. Verkefnavinna
Allir starfsmenn tóku þátt í verkefnavinnu sem stýrihópurinn stjórnaði. Hópnum var skipt í 4 smærri hópa og góðar umræður sköpuðust, í þessari vinnu, sem mun nýtast stýrihópnum vel í framhaldinu. Niðurstöður verða sendar þátttakendum í tölvupósti.
Fundi slitið kl. 16:00
Birna María Antonsdóttir
Sævar Ari Finnbogason
Ingibjörg Hannesdóttir
Arna Arnórsdóttir
Hlynur Máni Sigurbjörnsson
Til baka