starfshópur um endurskoðun á samþykktum, fundur nr. 16

Dags. 29.8.2011

FUNDARGERÐ
16. fundur starfshóps um endurskoðun á samþykktum Hvalfjarðarsveitar.


Haldinn 29.08.2011 kl. 20:00 í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar.


Mætt:
Sævar Ari Finnbogason, Anna Leif Elídóttir og Arnheiður Hjörleifsdóttir. Arnheiður ritaði fundargerð í tölvu.


Formaður bauð fundarfólk velkomið og setti fund.


1. Erindisbréf nefnda. Hópurinn fór yfir hlutverk sameinaðrar atvinnumála- og menningarmálanefndar, eða menningar- og atvinnuþróunarnefndar eins og hún heitir nú samkvæmt samþykktum Hvalfjarðarsveitar. Formaður dreifði einnig öðrum erindisbréfum til nefndarmanna. Ákveðið að halda áfram vinnu við endurskoðun á erindisbréfunum og munu nefndarmenn senda drög á milli sín í tölvupóst fram að næsta fundi. Stefnt er að því að halda hann miðvikudaginn 31. ágúst nk.

 


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 22.30


Sævar Ari Finnbogason
Anna Leif Elídóttir
Arnheiður Hjörleifsdóttir



Til baka