Staðardagskrá 21, fundur nr. 12

Dags. 7.3.2007

Stýrihópur um Staðardagskrá 21 í Hvalfjarðarsveit

 

12. fundur haldinn á Innrimel 3 7. mars 2007 kl. 20:00.

 

Mætt eru: Arnheiður Hjörleifsdóttir, formaður, Jóhanna Harðardóttir og Jón Haukur Hauksson, sem ritaði fundargerð. Þá er mætt Ragnhildur Helga Jónsdóttir, starfsmaður skrifstofu Staðardagskrár 21.

 

Fundurinn er haldinn til að fjalla um þann texta sem borist hefur frá sveitarstjórn og nefndum.

Stýrihópurinn telur að sú vinna sem unnin hefur verið komi til með að nýtast sveitar-stjórn og nefndum sveitarfélagsins vel til framtíðar. Rætt er um áframhaldandi vinnslu textans og útgáfu, sem gæti verið á tvennu formi, annars vegar bæklingur og ítarefni.

Ákveðið er að nefndarmenn hafi tækifæri til að gera athugasemdir og senda textann í síðasta lagi 11. mars n.k. til formanns eða skrifstofu Staðardagskrár21 í Borgarnesi þar sem nánari úrvinnsla fer fram.

Ákveðið er að stefna að opnu húsi á næstunni, t.d. 31. mars n.k. Formaður hefur samráð við formann skipulags- og byggingarnefndar og stýrihóps um skólastefnu um samstarf að þessu leyti.

Næsti fundur er ákveðinn 27. mars n.k. kl. 20:00 á Innrimel. Fundi slitið kl. 21:17.

Jón Haukur Hauksson



Til baka