Staðardagskrá 21, fundur nr. 13

Dags. 27.3.2007

Stýrihópur um Staðardagskrá 21 í Hvalfjarðarsveit

13. fundur haldinn á Innrimel 3 27. mars 2007 kl. 20:00.

Mætt eru: Arnheiður Hjörleifsdóttir, formaður, Jóhanna Harðardóttir og Jón Haukur Hauksson, sem ritaði fundargerð. Þá er mætt Ragnhildur Helga Jónsdóttir, starfsmaður skrifstofu Staðardagskrár 21.

Þessi mál voru tekin fyrir:

1. Úrvinnsla Staðardagskrárskrifstofunnar í Borgarnesi á Staðardagskrá21 fyrir Hval-fjarðarsveit hefur farið fram, að fengnum ábendingum frá stýrihópnum. Nefndarmenn eru sammála um að vinna að svo stöddu ekki frekar í textanum, en taka hann upp að nýju eftir að hugmyndir og tillögur hafa komið fram á Opnu húsi n.k. laugardag.

2. Opið hús í Heiðarskóla 31. mars 2007. Rætt um fyrirkomulag, undirbúning og um kynningu þeirra draga sem fyrir liggja. Nefndin telur rétt að núverandi drög verði kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins.

3. Næstu skref að loknu Opnu húsi. Nefndin gerir ráð fyrir að veita íbúum frest til 11. apríl n.k. til að koma með athugasemdir og tillögur. Gert er ráð fyrir að eftir að fjallað hafi verið um athugasemdir og tillögur verði drögin kynnt fyrir atvinnufyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum, m.a. félögum sumarhúsaeigenda.

Næsti fundur er ákveðinn 11. apríl n.k. kl. 19:00 á Innrimel. Fundi slitið kl. 21:18.

Jón Haukur Hauksson



Til baka