Menningarmálanefnd, fundur nr. 21

Dags. 5.7.2010

FUNDARGERÐ

21. fundur menningarmálanefndar Hvalfjarðarsveitar.

Haldinn mánudaginn 5. júlí 2010 kl. 16:00 að Innrimel 3

 

Mættir:

Anna Leif Elídóttir, Jóhanna Harðardóttir og Inga Bryndís Ingvarsdóttir

 

Auk þeirra Laufey Jóhannsdóttir, sveitarstjóri og oddviti sveitarfélagsins Sigurður Sverrir Jónsson sem setti fundinn og bauð fólk velkomið

 

 

Fundargerð

 

1. Kosning formanns, varaformanns og ritara.

 

Oddviti Hvalfjarðarsveitar bað um tilnefningu til formanns nefndarinnar.

Stungið var upp á Önnu Leif Elídóttur. Var hún kjörin með öllum atkvæðum.

Stungið var upp á Jóhönnu Harðardóttur sem varaformanni og var hún kjörin með öllum atkvæðum og Ingu Bryndísi Ingvarsdóttur sem ritara og var hún kjörin með öllum atkvæðum. Sigurður Sverrir og Laufey stigu af fundi.

 

2. Dagsrkárliðir í ágúst, október og desember 2010 sem tengdir eru fjárhagsáætlun nefndarinnar.

 

a. Fjölskyldu- og sumar hátíð þann 8. ágúst að Hlöðum. Leikir, brekkusöngur, tónlistaratriði og fleira.

 

b. Hausthátíð í október, veisla sem tengd verður uppskeru sumarsins; sulta, svið, slátur, kartföflur og rófur, brauð, fjallagrös, bygg og broddur. Huga að samstarfi við bændur um sölu og kynningu á vörum “beint frá býli”.

 

c. Jólaball fyrir börnin og/eða aðventutónleikar í desember.

 

3. Önnur mál.

 

a. Formaður les upp 51. gr. í Samþykkt um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, 8. lið, Menningarmálanefnd. Nefndin stefnir á að marka stefnu sveitarfélagsins í menningarmálum í samstarfi við íbúana.

 

b. Erindi frá Guðjóni Sigmundssyni borið fram þar sem hann biðlar til nefndarinnar um samstarf í viðburðum sem tengjast 30 ára afmæli félagsheimilisins að Hlöðum. Nefndin hyggst vera í samstarfi við Guðjón eftir föngum og mun bjóða honum á næsta fund nefndarinnar til að ræða um samstarfið.

 

c. Nefndin hyggur á að skipuleggja starf fyrir næsta ár snemma en halda áfram með þá viðburði sem þegar hafa verið mótaðir. Í febrúarlok árið 2011 þarf viðburðadagskrá að vera tilbúin, jafnvel í samstarfi við Kjósverja.

 

d. Fjárhagsáætlun árið 2010 í menningarmálum Hvalfjarðarsveitar lögð fram til kynningar.

 

Næsti fundur áætlaður 12. júlí 2010 kl: 16:00 í Stjórnsýsluhúsinu að Innrimel 3.

 

Fundi slitið kl 18:00.

 

Inga Bryndís Ingvarsdóttir



Til baka