Sameinaður leik- og grunnskóli tók til starfa í ágúst 2011 og starfar sem ein stofnun undir nafninu Tindaskóli frá 1. janúar 2012 - 14. febrúar 2012 en þann dag felldi sveitarstjórn ákvörðun um nafn úr gildi.

 

Á 111. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar var ákveðið að fræðslu- og skólanefnd og allir áheyrnafulltrúar hennar skyldu vera dómnefnd í nafnasamkeppni um nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Haldin var nafnasamkeppni sem var opin frá skólasetningu grunnskólasviðsins þann 23. ágúst til 1. nóvember 2011. Alls tóku 128 einstaklingar þátt í keppninni og sendu inn 231 nafnatillögur að 116 nöfnum. Þar af hlutu 78 tillögur eina tilnefningu og 38 tillögur hlutu tvær eða fleiri. Dómnefndin fjallaði um allar tillögur sem bárust í nafnasamkeppnina á þremur fundum fræðslu- og skólanefndar. Nefndin hefur komist að niðurstöðu og leggur til að sameinaður leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar taki upp nafnið Tindaskóli frá og með 1. janúar 2012. Sveitarstjórn staðfesti nafnið á fundi sveitarstjórnar þann 29. nóvember 2011.

Skoðanakönnun um nafn á skóla og skólasviðum

Sveitarstjórn ákvað á 121. fundi sínum að draga til baka ákvörðun sína frá 118. fundi um nafn á nýsameinaðan skóla sveitarfélagsins. Þá staðfesti sveitarstjórn tillögu dómnefndar í nafnasakeppni um nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar sem hún hafði efnt til á 111. fundi sínum.

Ennfremur ákvað sveitarstjórn samhljóða að efnt skyldi til skoðanakönnunar meðal allra kosningabærra íbúa um nafn á skólann sjálfan og nafn á leikskóla- og grunnskóladeildir skólans. Munu íbúar þá geta valið það nafn sem þeim hugnast best og það nafn sem fær flesta atkvæði verður notað. Fáist ekki afgerandi niðurstaða verður kosið á milli vinsælustu nafna.
Þetta þýðir að skóli sveitarfélagsins og skólasvið eru því formlega án nafna þar til niðurstaða úr skoðanakönnuninni liggur fyrir.


Samþykkt sveitarstjórnar var svohljóðandi
Að sveitarstjórn falli frá afgreiðslunni frá 118. fundi en að fram fari skrifleg skoðanakönnun meðal íbúa sveitarfélagsins þar sem allir kosningabærir íbúar geta skráð hvert það nafn sem þeir vilja fyrir a) sjálfan skólann í Hvalfjarðarsveit , b) grunnskólasvið og c) leikskólasvið. Fáist ekki afgerandi niðurstaða í skoðanakönnuninni verið kosið milli efstu nafna.
Samþykkt 6-0

____________

 

Grunnskólasvið stendur við Leirá í Hvalfjarðarsveit. Skólinn tók til starfa árið 1965 og sækja hann um 85 nemendur.

 

Leikskólasvið  er staðsett í Melahverfi.  Leikskólann sækja 37 börn. 

 

Ný heimasíða sameinaðs leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit

 

Vinnuskóli Hvalfjarðarsveitar