Sameinaður leik- og grunnskóli tók til starfa í ágúst 2011 og starfar sem ein stofnun undir nafninu Tindaskóli frá 1 janúar 2012.
Á 111. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar var ákveðið að fræðslu- og skólanefnd og allir áheyrnafulltrúar hennar skyldu vera dómnefnd í nafnasamkeppni um nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Haldin var nafnasamkeppni sem var opin frá skólasetningu grunnskólasviðsins þann 23. ágúst til 1. nóvember 2011. Alls tóku 128 einstaklingar þátt í keppninni og sendu inn 231 nafnatillögur að 116 nöfnum. Þar af hlutu 78 tillögur eina tilnefningu og 38 tillögur hlutu tvær eða fleiri. Dómnefndin fjallaði um allar tillögur sem bárust í nafnasamkeppnina á þremur fundum fræðslu- og skólanefndar. Nefndin hefur komist að niðurstöðu og leggur til að sameinaður leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar taki upp nafnið Tindaskóli frá og með 1. janúar 2012. Sveitarstjórn staðfesti nafnið á fundi sveitarstjórnar þann 29. nóvember 2011.
Heiðarskóli ( grunnskólasvið) stendur við Leirá í Hvalfjarðarsveit. Skólinn tók til starfa árið 1965 og sækja hann um 85 nemendur.
Skýjaborg (leikskólasvið) er staðsettur í Melahverfi. Skólann sækja 37 börn.
Vinnuskóli Hvalfjarðarsveitar