21. desember 2011

Deiliskipulag Stekkjarholt

Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.131/2011 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi Stekkjarholts, frístundabyggð í landi Kalastaðakots Hvalfjarðarsveit.
Um er að ræða frístundabyggðasvæði 13 ha að stærð, alls 10 lóðir.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við samþykkt aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.

19. september 2011

Opið hús í Hvalfjarðarsveit

Kynning á lýsingu vegna deiliskipulags frístundabyggðar í landi Kalastaðakots í Hvalfjarðarsveit


Gerð hefur verið lýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags frístundabyggðar í landi Kalastaðakots í Hvalfjarðarsveit.
Af því tilefni er opið hús fyrir almenning, sbr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, til að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tillöguna og jafnframt að leita eftir ábendingum og athugasemdum.

30. ágúst 2011

Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Eystri- Leirárgarða Hvalfjarðarsveit

Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Eystri- Leirárgarða Hvalfjarðarsveit.


Deiliskipulagstillagan er í samræmi við samþykkt aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 og gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreitum  og allt að 40 kW vatnsaflsvirkjunar í Bugalæk við Leirárgarða í Hvalfjarðarsveit.

18. maí 2011

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis, athafna- og hafnarsvæðis og iðnaðarsvæðis á Grundartanga, vestursvæði

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar auglýsir breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis, athafna- og hafnarsvæðis og iðnaðarsvæðis á Grundartanga vestursvæði samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 og tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 stækkun iðnaðarsvæðis á Grundartanga, sem er í auglýsingaferli til 23. maí 2011

18. maí 2011

Tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020

Breytingin varðar skilgreiningu opinna svæða til sérstakra nota í landi Þórisstaða í Hvalfjaðrarsveit.

 

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar auglýsir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða tvö opin svæði til sérstakra nota og hafa þau tilvísunarnúmerin O25 og O26 í greinargerð og sveitarfélagsuppdrætti. 

10. maí 2011

Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Sumarbústaðalóða Glammastöðum, Hvalfjarðarsveit.

Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Sumarbústaðalóða Glammastöðum, Hvalfjarðarsveit.

Samkvæmt ákvæðum  1. mgr. 43gr. Skipulagslaga nr.123/2010  er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sumarbústaðalóða Glammastöðum, Hvalfjarðarsveit.

1. maí 2011

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020. Breyting varðar stækkun iðnaðarsvæðis á Grundartanga, ásamt niðurfellingu svæða fyrir frístundabyggð og göng- og reiðleiðar sunnan Akrafjalls.


Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar auglýsir breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020  samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting varðar stækkun iðnaðarsvæðis á Grundartanga um 6,9 ha, og mun  athafnasvæði á Grundartanga minnka sem því nemur.

17. febrúar 2010

Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Hafnaráss í landi Hafnarsels Hvalfjarðarsveit.

Samkvæmt ákvæðum  1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr.73/1997  er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hafnaráss í landi Hafnarsels Hvalfjarðarsveit.