Réttir í Hvalfjarðarsveit haustið 2010

 

 

Landbúnaðarnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur skipulagt réttir í Hvalfjarðarsveit á þessu ári í samráði við hagsmunaraðila sauðfjárbænda og landeigenda. 

 

 

Réttað verður í Reynisrétt 11.sept eftir smölun. Réttarstjóri er Ólafur Sigurgeirsson og marklýsingamenn Benoný Halldórsson og Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.

 

Réttað verður í Núparétt 12. sept. Kl. 13:00. Réttarstjóri er Baldvin Björnsson og marklýsingamenn Sigurður Valgeirsson og Helgi Bergþórsson.

 

Réttað verður í Svarthamarsrétt 12. sept. Kl. 10:00. Réttarstjóri er Sigurjón Guðmundsson og marklýsingamenn Guðmundur Friðjónsson og Brynjólfur Ottesen.

 

Skilamenn útrétta verði Baldvin Björnsson og Hannes Magnússon í Hreppsrétt, Stefán Ármannsson og Sigurgeir Þórðarson á Þverfelli.

 

Leitarstjórar eru Guðmundur Sigurjónsson fyrir smölunarsvæði Svarthamarsréttar, Magnús Hannesson og Baldvin Björnsson fyrir smölunarsvæði Núparéttar og Steinar Benonýsson fyrir smölunarsvæði Reynisréttar.

 

Seinni réttir í Reynisrétt og Núparétt 25. september og í Svarthamarsrétt 26. september.

 

  

Fjallskilasamþykkt