19. desember 2004

Álit lesenda

Hér geta lesendur sagt skoðun sína á vefnum "hvalfjardarsveit.is". Komið með ábendingar um efni eða annað sem á við. Álitið birtist, og geta allir sem skoða þetta svæði skoðað það. 

 

Til baka

Senda á Facebook
hvalfjordur.is er ...
- 20.12.2004 08:55:49 ... mikið framfaraspor. Hægt að sjá á einum stað auglýsingar, tilkynningar, fréttir. Við mættum þó jafnvel vera duglegri við að koma efni á framfæri. Það erum við, notendur, sem stjórnum því hversu virkur vefurinn verður. Þau félög og einstaklingar, sem komu þessum vef upp, eiga hrós skilið - og fá klapp frá mér!
Jón Haukur Hauksson
Gott mál
Frábært að geta fylgst með hvað helst er að gerast á svæðinu, er viss um að vefurinn verði mikið nýttur í framtíðinni. Jólakveðja
Petrína Ottesen
Flottur vefur
- 9.1.2005 19:46:05 Til hamingju með flottan vef. Gaman að geta séð hvað er að gerast í sveitinni. Verð örugglega tíður gestur á vefnum í framtíðinni. Kveðja af malbikinu
Hörður Birgisson
Hvalfjordur.is
Ég má til með að hrósa þeim sem eiga veg og vanda að þessum vef fyrir gott framtak. Það er auðvitað nauðsynlegt að fólk í bráðum sameinuðum hreppum geti skipst á skoðunum og lesið um hvað er á döfinni í sveitarfélaginu sínu. Þetta eykur líka samkennd og þjappar fólki saman. Einnig er mjög gott að geta lesið fundargerðir hreppsnefnda. Ég er sérstaklega ánægður með nágranna minn og vin Ásgeir á Leirá. Ásgeir minn, hafðu bara nóg af byggbjórnum á þorrablótinu. Ég verð örugglega þyrstur. Kveðja, Kristmundur í Lyngholti.
Kristmundur Einarsson
góð síða
- 14.2.2005 19:53:28 þetta er flott og góð síða hjá þeim sem komu þessu á framfæri hér getur maður séð nánast allt sem gerist í sveitarfélugunum og það er hægt að tilkinna margt hérna t.d. messur þegar skólanum er frestað vegna veðurs og margt annað sem á eftir að koma í framtíðinni. kveða af Innesinu
Jón Ottesen
Fyrirlestri frestað í Snorrastofu
Eins og kynnt hefur verið með dreifibréfi átti Einar Hreinsson, sagnfræðingur, að flytja fyrirlestur í fyrirlestraröðinni ,,Fyrirlestrar í héraði" í Snorrastofu í kvöld. Þar sem Einar er veikur hefur fyrirlestri hans verið frestað fram í maí. Nánari tímasetning verður auglýst síðar. Með kærri kveðju,
Bergur Þorgeirsson
Ferðaþjónusta
- 31.5.2005 13:48:12 Mér finnst alveg vanta upplýsingar um gistingu og tjaldsvæði fyrir ferðalanga. Að öðru leyti er vefurinn aðgengilegur og þægilegur í notkun og viðmóti.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir
Er vefurinn að deyja út??
Eða er ekkert að gerast í okkar samfélagi? Hvað með fundargerðir hreppsnefnda eða eru þær hættar að funda?
Sigurgeir Þórðarson
Hreppsnefndir
- 6.2.2006 21:59:06 Er til of mikils ætlast að á þeim tímum þegar tölvur eru á nánast hverju heimili og fundargerðir hreppsnefnda eru unnar á tölvu, að þær séu settar inn á vefinn okkar góða? Ég vona að hreppsnefndarmenn og konur lesi þetta og leyfi okkur sem eigum rétt á því að vita hvað á hreppsnefndarfundum er ákveðið, setji fundargerðirnar á vefinn okkar, helst daginn eftir hvern fund.
Kristmundur, Lyngholti
Kveðja Frá Tenerife
Vorum að kíkja inná vefinn til að fylgjast með pólutíkinni í sveitinni vegni ykkur vel í komandi kosningum sólar kveðjur til ykkar allra Bogga + Haffi Tenerife
Haffi og Bogga
Kirkjur
- 24.7.2006 22:51:58 Verð að nefna það, en það vantar alveg umsögn eða/og myndir af kirkjum. t.d Hallgrímskirkju á Saurbæ. Endilega bæta við... :)
Tedda
Fundargerðir allra nefnda
Óska eftir að fundargerðir allra nefnda verði settar inn á heimasíðuna. Þetta á ekki hvað síst við um fundargerðir skipulags- og byggingarnefndar.
Helgi Helgason
Heimasíða Heiðarskóla
- 11.8.2006 13:13:33 Það mætti alveg virkja betur heimasíðu Heiðarskóla. Tildæmis að láta vit hvenær skólinn byrjar og setja inn innkaupalista fyrir nemendur.Hefur einhver hugmynd um hvenær skólinn byrjar? Það hefur ekkert verið sett þar inn síðan í vor.
Olga Magnúsdóttir
Frístundar -- Heisl sumarhúsarbigð eða sumahúsabigð?
Mér finnst gott að það sé búið að ráðann níann bygingafultrúa enn er hann ekki,sömustöðu og ólafur hann ræður engu, hann verður að fara eftir öllu fyrir sunann. Mér finnst að það ætti að vera sjer slóði um sumarbústaða bigð og sumarbústaða lönd, sem eru í bígerð og þaug sem reu ,í vinnslu og eru til sölu og skipulag ligur fyrir og það sé ekki vera draga þetta á lánginn að fólk misir á hugann á staðnum sem það hefur fundið sér á þessum falega stað í Hvjalfarðarsveit.
Ingimar.Þ.
bvcvcvcv
- 11.10.2006 21:55:54 gfgfg
ggdg
Heisl sumarhúsabigð
Wender locktig tas liber nact undeer æsltw bernderinger actung gefahr. Olcter hasten fragtinger tolæsdram.
Æ.Þ.Þ.
Nettenging
- 26.10.2006 20:07:29 Ég er ósátt við þjónustu Emax, sem hefur verið mjög óáreiðanleg síðan ég byrjaði að kaupa þjónustu af þeim. Getur sveitarstjórn unnið eitthvað í því að útvega íbúum betri tengingu? Ég veit að það eru fleiri en ég sem verða að hafa örugga nettengingu og þetta er eitt af því sem fólk horfir á þegar það metur svæðið með tilliti til búsetu.
Brynja Þorbjörnsdóttir
hvalfjordur.is
Góð síða .. má samt aðeins hrista uppí henni t.d með hrósi mánaðarins og hafa einn nöldra líka.. Það er þá bara einn einstaklingur sem nöldrar og verður sá að fylgjast vel með sveitalífinu.. þar getur líka verið komment á hrósið og nöldrið ..
Heiðar Logi Sigtryggsson
hvalfjordur.is
- 4.1.2007 22:08:05 Var að uppgvöta þessa síðu og sýnist hún hafa ýmislegt til síns ágætis. Sé að það hefur margt breyst á ýmsan hátt síðan ég bjó og kenndi í Heiðarskóla 1997-2000. Gaman að geta skoðað myndir en upplausnin á þeim er nú eiginlega þannig að það er betur heima setið en af stað farið með myndasafnið. Annars sendi ég bara góðar kveðjur til þeirra sem enn muna eftir mér og mínum.
Kristín Einarsdóttir
Lesa álit
Mér finnst vanta að það sé hægt að lesa "álit" á fréttum sem eru komnar neðarlega á síðuna. Annars bara allt gott um þessa síðu að segja.
Ingibjörg Sigurðardóttir
stafsetning
- 10.4.2007 11:01:05 Bara að benda þeim á sem setti inn myndir af stækkun Skýjaborgar og skrifaði þar texta við að það er stórt B í Bakki. Kata á Bakka
Katrín Rós Sigvaldadóttir
Bloggarar
Gaman væri að fá bloggara í sveitarfélaginu hér undir MANNLÍF. Fréttir úr sveitinni eru alltaf vel þegnar og geta oft komið í veg fyrir misskilning. Því miður eru menn ekkert mikið að fara á milli bæja og ræða málin. Samskiptamátinn er að breytast hvort sem okkur líkar betur eða verr. Umræðurnar eru að færast út á veraldarvefinn sem áður voru heima í eldhúsi.
Kveðja Ursula
Brilli á Hólmi
- 22.2.2008 23:31:50 Sæll frændi væri ekki upplagt hjá ykkur að fá nýtt nafn á lóðar & skipulagsumsókninni t.d HB-Grund svona til að láta þetta líta út eins og "spennandi mótvægisaðgerð" (auðvitað stendur H-B fyrir Hólmur Byggingarsvæði/Grund). En síðan er góð og gaman að skoða hana. Sig Arnar
Sig Arnar
Ábendingar um vefinn
Mig langar til að nefna tvennt sem mætti bæta úr held ég: 1) Mig langar til að sjá hvaða daga sundlaugin í Heiðarborg er opin í vetur. Hvar í ósköpunum finn ég upplýsingar um það? Getur verið að þær upplýsingar sé hvergi að finna á vef Hvalfjarðarsveitar? 2) Til þess að fengið upplýsingar um félagsheimilin og hverjir eru húsverðir þar verð ég að hafa ímyndunarafl til að láta mér detta í hug að þær upplýsingar sé að finna undir "Mannlíf"! Mér finnst að upplýsingar bæði um "Sundlaugar" og "Félagsheimili" ættu að blasa við þeim sem fara inn á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar.
Einar Örn Thorlacius, Svarfhóli
GPsyVUqAhQXgEu
- 13.2.2012 13:28:33
cWGaSUVmsFkPi
RnzgvfMKnLCT

gYPJrDRgSYTFnI
NTXwmvpGSvZaXRECU
- 2.3.2012 03:00:46
pdaLdqUnSseaavBicmp