|
Hestamannafélagið Dreyri á Akranesi og Hvalfjarðarsveit heldur árlegt íþróttamót sitt um helgina, dagana 18. og 19. ágúst, á Æðarodda. Um er að ræða opið íþróttamót. Þátttaka að þessu sinni er mun dræmari en venja er til, en þó eru skráningar um 100 og um 80 hross sem keppt verður á. Þess má geta að í fyrra var mótið haldið í samstarfi við hestamannafélagið Hörð og voru skráningar þá 600 talsins. Ástæða minni skráningar að þessu sinni er að sögn talsmanna Dreyra sú að Suðurlandsmótið í hestaíþróttum var nú fært yfir á sömu helgi. |