7. ágúst 2012

Tónlistarnám haustið 2012

Til foreldra- og forráðamanna barna í leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.

Á fundi með skólastjóra leik- og grunnskólans, skólastjóra Tónlistarskóla Akraness, formanni fræðslu- og skólanefndar og framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu Akraness sem haldinn var þann 2 ágúst sl. var ákveðið að gefa börnum í Hvalfjarðarsveit aukna möguleika á tónlistarnámi næsta skólaár.

 

Um er að ræða píanókennslu og gítarkennslu. Kennslan fer fram að hluta til á skólatíma og eru foreldrar og forráðamenn hvattir til þess að sækja um námsvist fyrir börnin sem fyrst ( þau sem ekki eru nú þegar skráð).

Senda skal beiðni fyrir nemendur á toska@toska.is frá og með deginum í dag og til og með 24. ágúst.

Kennsla í Tónlistarskólanum hefst svo mánudaginn 3. september 2012 . Sjá vefslóð: www.toska.is

Foreldrar eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri fyrir börn sín til þess að stunda nám í Tónlistarskólanum.

Með kveðju

Sveitarstjóri.

 

Til baka

Senda á Facebook

Atburðadagatal

S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14

24
25

26
1

2
3
4
5
6
7
8

Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður

VEÐUR OG FÆRÐ

14:00
A 6
9,7 °c
14:00
ASA 7
9,8 °c
14:00
SSA 4
10,7 °c
14:00
ANA 9
10,2 °c
.