Á fundi sveitarstjórnar sem haldinn var í gær 24. apríl var samþykkt að Heiðarskóli væri nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit.
Grunnskólasviðið fengi nafnið Heiðarskóli
og leikskólasviðið Skýjaborg.
Bókun sveitarstjórnar er eftirfarandi;
Bókun L og H lista
Skoðanakönnun þessi var framkvæmd í kjölfar þess að undirskriftalista með undirskriftum 261 kosningabærs íbúa barst sveitarstjórn.
Í upplýsingarit sem sent var út með könnuninni kom fram að gerð var krafa um 50% þátttöku og að meira en 20% munur væri á vinsælustu nöfnunum til þess að könnunin teldist marktæk
Sendir voru út 471 seðill af þeim bárust 11 til baka frá Íslandspósti með bókun um að móttakandi hafi verið „óþekktur eða farinn“. Þýði könnunarinnar eru því 460
(471—11=460). Samkvæmt úrskurði kjörstjórnar voru gildir seðlar voru 229. Það telst vera 49,78% þátttaka. Námundað í heila tölu telst það vera 50%
(229 / 460 = 0,497826 49,78% ≈ 50%) Ennfremur bárust 12 svör of seint (um 2,5% útsendra miða)
Svör í könnuninni teljast afgerandi
Í lið a. nafn á sameinaðan leik og grunnskóla reyndust 130 af 229 vilja að að skólinn nefndist Heiðarskóli, og telst það marktækur munur.
Í lið b. nafn grunnskólasviðs völdu 199 af 229 nafnið Heiðarskóli og telst það marktækur munur
Í lið c. nafn leikskólasviðs völdu 208 af 229 nafnið Skýjaborg.
Þar sem niðurstöður í öllum liðum geta talist afgerandi og þátttaka í skoðanakönnuninni er um 50% leggja L og H listi til að úrslit hennar standi þannig að
sameinaður leik- og grunnskóli beri nafnið Heiðarskóli, grunnskólasvið beri nafnið Heiðarskóli og leikskólasvið beri nafnið Skýjaborg.
Tillaga um nafnið samþykkt samhljóða 7-0.
Sveitarstjóri.