22. febrúar 2012
Ef væri ég gullfiskur
Leikfélagið Sunnan Skarðsheiðar frumsýnir leikritið „Ef væri ég gullfiskur“ eftir Árna Ibsen, á föstudagskvöldið 24. febrúar n.k., í félagsheimilinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd. Það hlýtur að teljast vera spennandi áskorun fyrir leikstjóra að takast á við það verk að leikstýra áhugaleikurum, sem leggja mikið á sig með fullri vinnu, bara fyrir ánægjuna eina til þess að gleðja sveitunga sína með skemmtilegum uppákomum sem þessari. Margrét Eir hefur leikstýrt þessum hópi eldhuga í Hvalfjarðarsveitinni, sem tekst á við það að koma á framfæri þeirri ádeilu sem „Ef væri ég gullfiskur“ er.
Viðfangsefnið er það mannlega eðli að girnast ýmislegt bæði veraldlegt og andlegt sem helst tilheyrir öðrum, hver kannast ekki við það í núverandi íslenskum raunveruleika? Munurinn er sá að á sviðinu eru þessar „staðreyndir“ settar upp á spaugilegan hátt. Leikmyndin er flott og metnaðarfull og sýnir stofuna heima hjá Pétri Aðalsteinssyni sem hyggur á betra líf. Eins og við er að búast fara hlutirnir ekki alveg eins og hann hafði planað, þegar ættingjar hans og tengdalið taka upp á því að takast á um lífsins lystisemdir einmitt í stofunni hans og öðrum vistarverum.
Við hjónin brugðum okkur á generalprufu hjá hópnum og áttum skemmtilega kvöldstund. Við sáum að það er aðeins misjafnt hversu sviðsvanir leikararnir hugrökku eru sem sýndu þó mikil og skemmtileg tilþrif á sviðinu. Svo mikið er víst að þeim er alveg óhætt að láta gamminn geysa því að þau hafa til að bera flotta búninga, skemmtilegt viðfangsefni, útlitið, förðun og hárgreiðslu sem er sannfærandi fyrir þau hlutverk sem þau fara með. Það er boðið upp á öll nauðsynlegu atriðin í slíku verki: bráðfyndna takta, óborganleg svipbrigði, óvænta uppákomu og smellinn texta. Við hlógum dátt á meðan á sýningu stóð og eftir hana þegar við rifjuðum upp þessi atriði. Við viljum hvetja íbúa á Vesturlandi til að fagna þessu framtaki með því að skella sér á sýninguna og hlaða á gleðitankinn. Auglýstar sýningar eru föstudaginn 24. febrúar kl. 20:00 og laugardaginn 25. febrúar kl.20:00.
Ingibjörg Einarsdóttir og Haraldur Júlíusson, Bifröst.
Bára Tómasdóttir
Til baka