16. febrúar 2012
Skoðanakönnun um nafn á skóla og skólasviðum
Sveitarstjórn ákvað á 121. fundi sínum að draga til baka ákvörðun sína frá 118. fundi um nafn á nýsameinaðan skóla sveitarfélagsins. Þá staðfesti sveitarstjórn tillögu dómnefndar í nafnasakeppni um nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar sem hún hafði efnt til á 111. fundi sínum.
Ennfremur ákvað sveitarstjórn samhljóða að efnt skyldi til skoðanakönnunar meðal allra kosningabærra íbúa um nafn á skólann sjálfan og nafn á leikskóla- og grunnskóladeildir skólans. Munu íbúar þá geta valið það nafn sem þeim hugnast best og það nafn sem fær flesta atkvæði verður notað. Fáist ekki afgerandi niðurstaða verður kosið á milli vinsælustu nafna.
Þetta þýðir að skóli sveitarfélagsins og skólasvið eru því formlega án nafna þar til niðurstaða úr skoðanakönnuninni liggur fyrir.
Samþykkt sveitarstjórnar var svohljóðandi
Að sveitarstjórn falli frá afgreiðslunni frá 118. fundi en að fram fari skrifleg skoðanakönnun meðal íbúa sveitarfélagsins þar sem allir kosningabærir íbúar geta skráð hvert það nafn sem þeir vilja fyrir a) sjálfan skólann í Hvalfjarðarsveit , b) grunnskólasvið og c) leikskólasvið. Fáist ekki afgerandi niðurstaða í skoðanakönnuninni verið kosið milli efstu nafna.
Samþykkt 6-0
Tímasetning skoðunarkönnunarinnar mun væntanlega liggja fyrir eftir næsta fund sveitarstjórnar þann 28. febrúar næstkomandi.
Hvalfjarðarsveit vill þakka öllum þeim sem sendu tillögur í nafnasamkeppnina, sem og þeim sem tóku þátt vali nafnsins og starfi dómnefndar.
Til baka