27. janúar 2012
Tilkynning til fasteignaeigenda um álagningu ársins 2012
Hvalfjarðarsveit tilkynnir hér með að einungis verða sendir út álagningarseðlar í bréfpósti fyrir árið 2012 til fasteignaeigenda 67 ára og eldri. Aðrir fasteignaeigendur fá ekki sendan álagningarseðil í bréfpósti heldur verður það gert með þeirri nýbreytni að nú geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðil sinn þegar þeim hentar á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is.
Þessi birting kemur í stað þess að tilkynning sé send út með hefðbundnum bréfpósti. Áfram verður hægt að óska eftir álagningarseðli í bréfpósti með því að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 433-8500 eða á netfangið kristjana@hvalfjardarsveit.is
Hér má sjá álagningu gjalda í Hvalfjarðarsveit árið 2012
Til baka