8. september 2010
Smölun og réttir í Hvalfjarðarsveit haustið 2010
Nú styttist í árlegan stórviðburð í Hvalfjarðarsveit þegar smölun hefst og réttað verður. Landbúnaðarnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur skipulagt réttir í Hvalfjarðarsveit á þessu ári í samráði við hagsmunaraðila sauðfjárbænda og landeigenda.
Réttað verður í Reynisrétt 11.sept eftir smölun. Réttarstjóri er Ólafur Sigurgeirsson og marklýsingamenn Benoný Halldórsson og Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
Réttað verður í Núparétt 12. sept. Kl. 13:00. Réttarstjóri er Baldvin Björnsson og marklýsingamenn Sigurður Valgeirsson og Helgi Bergþórsson.
Réttað verður í Svarthamarsrétt 12. sept. Kl. 10:00. Réttarstjóri er Sigurjón Guðmundsson og marklýsingamenn Guðmundur Friðjónsson og Brynjólfur Ottesen.
Skilamenn útrétta verði Baldvin Björnsson og Hannes Magnússon í Hreppsrétt, Stefán Ármannsson og Sigurgeir Þórðarson á Þverfelli.
Leitarstjórar eru Guðmundur Sigurjónsson fyrir smölunarsvæði Svarthamarsréttar, Magnús Hannesson og Baldvin Björnsson fyrir smölunarsvæði Núparéttar og Steinar Benonýsson fyrir smölunarsvæði Reynisréttar.
Seinni réttir í Reynisrétt og Núparétt 25. september og í Svarthamarsrétt 26. september.
Þátttakendur í leitum eru eindregið beðnir um að útbúa sig vel miðað við aðstæður og fara að öllu varlega. Komum heil heim.
Gaman væri að fá myndir sendar frá réttunum til að setja á vefinn, sendið myndir á ingabirna@hvalfjardarsveit.is.
Til baka