3. september 2010
Tómstundaávísanir sendar út strax eftir helgina
Þetta skólaárið gefur Hvalfjarðarsveit út 2 tómstundaávísanir fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri og verða þær sendar út til barnanna strax eftir helgina. Ávísanirnar hljóða uppá 10.000 kr. hvor og gildir önnur fram að áramótum en hin frá áramótum til loka ágúst 2011.
Með útgáfu ávísana til breiðari aldurshóps barna vonast sveitarfélagið eftir því að það verði hvatning til dáða fyrir börn í Hvalfjarðarsveit að iðka tómstundir og hreyfingu sem hefur ávallt mikið forvarnargildi.
Þar sem ekki má senda póst til barna undir 6 mánaða aldri mega foreldrar þeirra sem vilja nýta sér t.d. ungbarnasund koma á skrifstofu og sækja ávísun fyrir sín börn.
Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar.
Til baka