1. september 2010
Skemmtileg kvikmyndagerð
Námskeið í SKEMMTILEGRI KVIKMYNDAGERÐ fyrir unglinga á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit verður haldið í Þorpinu, Akranesi, á miðvikudagskvöldum milli kl. 18:30 og 21 frá 8. september fram í nóvember.
Kennarar eru Anna Leif Elídóttir og Kristinn Pétursson.
Skráning stendur yfir til 3. september. Námskeiðsgjald er 1.500 kr. Hægt er að skrá sig á vef námskeiðsins eða hjá Heiðrúnu í Þorpinu í síma 433 1251.
Nánari upplýsingar um námskeiðið eru á vef námskeiðsins:
www.minervamidlun.is/kvik
Námskeiðið er styrkt af Menningarráði Vesturlands.
............................................................................
Tilkynning frá Kristni Péturssyni
Til baka