26. ágúst 2010
Tékkar heimsækja Hvalfjarðarsveit
Á þriðjdaginn fékk Hvalfjarðarsveit heimsókn frá Tékklandi, um var að ræða 20 manna hóp tékkneskra sveitarstjórnarmanna sem voru að kynna sér vinnu sveitarfélaga á Vesturlandi í umhverfismálum. (sjá frétt www.environice.is)
Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri tók á móti hópnum ásamt Sigurði Sigurjónssyni leikskólastjóri, Söru Margréti Ólafsdóttur aðstoðarleikskólastjóri og Arnheiði Hjörleifsdóttur sveitarstjórnarfulltrúa.
Laufey kynnti sveitarfélagið fyrir gestunum, samfélagsgerð þess og sérstöðu.
Sérstakan áhuga höfðu Tékkarnir á sambúð sveitarfélagsins við stóriðjufyrirtækin. Að lokinni almennri kynningu á Hvalfjarðarsveit tók Sigurður við og fór yfir markmið Skýjaborgar í umhverfismennt og útikennslu, með sérstaka áherslu á Grænfánann og það ferli sem nú er nýlokið í þeirri vinnu hjá leikskólanum. Boðið var upp á léttan málsverð í stjórnsýsluhúsinu, íslenska framleiðslu þar á meðal súran hval, sem flestir brögðuðu á. Að kynningu lokinni heimsóttu gestirnir nemendur og starfsfólk Skýjaborgar, en þau voru stórhrifin af því starfi sem þar fer fram. Seinnipart dags notuðu gestirnir til að skoða meira af Hvalfjarðarsveit, m.a. Grunnafjörð, nýbyggingu við Heiðarskóla, Hallgrímskirkju í Saurbæ og fleiri staði undir leiðsögn Arnheiðar.
Til baka