25. ágúst 2010
Tómstundaávísanir 2010
Á fundi sínum þann 17. ágúst samþykkti sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar að gefa út tómstundaávísanir fyrir börn í Hvalfjarðarsveit. Ákveðið var að gefa út tvær 10.000,- kr. ávísanir fyrir hvert barn með lögheimili í sveitarfélaginu. Önnur gildir fram til áramóta, hin frá áramótum til ágústloka 2011. Ávísanirnar verða póstlagðar innan tíðar.
Hugmyndin er að ungmenni velji það starf sem þau kjósa að taka þátt í. Með þessu móti verði sem flestum gert kleyft að stunda íþrótta- og tómstundastarf að eigin vali en það hefur ómetanlegt forvarnargildi.
Sveitarstjóri.
Til baka